Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. nr. 91/2019
Með ákvörðun S var F hf. gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 10.500.000 króna vegna ætlaðra brota F hf. gegn 57. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og nánar tilgreindum ákvæðum eldri reglna Fjármálaeftirlitsins nr. 700/2011 um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja og gildandi reglna Fjármálaeftirlitsins nr. 388/2016 um kaupaukakerfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. F hf. greiddi sektina og höfðaði í kjölfarið mál á hendur S til ógildingar á ákvörðuninni og gegn Í til endurgreiðslu sektarinnar. Vegna athugasemdar héraðsdóms um að ekki hefði verið þörf á að stefna Í beindi F hf. kröfum sínum fyrir Landsrétti eingöngu að S. Sneri ágreiningur aðila að því hvort arðgreiðslur til hluthafa í B-hlutaflokki F hf. teldust ólögmætar kaupaukagreiðslur. Í dómi Landsréttar var tekið undir það með héraðsdómi að S hefði réttilega komist að þeirri niðurstöðu að í arðgreiðslum F hf. til hluthafa í B-hlutaflokki hefði falist kaupauki starfsmanna, að F hf. hefði ekki sett sér starfsreglur um kaupauka og að kaupaukar hefðu þar með ekki verið inntir af hendi á grundvelli kaupaukakerfis. Þá var fallist á það með S að hlutfall kaupauka af launagreiðslum starfsmanna F hf. hefði farið umfram leyfileg mörk og að F hf. hefði ekki frestað 40% kaupaukagreiðslna til þriggja ára eins og skylt hefði verið. Loks var tekið undir þá niðurstöðu að greiðslur til regluvarðar og þáverandi stjórnarmanns í F hf., hefðu farið í bága við ákvæði 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 161/2002 og tilgreind ákvæði fyrrnefndra reglugerða. Var fallist á að S hefði verið heimilt að leggja stjórnvaldssekt á F hf. og var S því sýknaður af kröfum félagsins.
Fjármálafyrirtæki hafði verið gert að sæta stjórnvaldssekt vegna ætlaðra brota á lögum og reglum um kaupaukagreiðslur til starfsmanna. Fyrirtækið krafðist ógildingar stjórnvaldsákvörðunarinnar en til vara þess að stjórnvaldssektin yrði felld niður eða lækkuð. Stefndu voru sýknaðir af kröfum fjármálafyrirtækisins.