Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, sbr. lög nr. 66/1993. nr. 91/1994

Hæstiréttur birt 11. júní 2015

674/2014

Viðskiptastofan Ármúla ehf (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn Eik fasteignafélagi hf (Magnús Hrafn Magnússon hrl)
Lykilorð: Húsaleigusamningur.
Málaflokkur: Leiguréttur

Aðilar deildu um þá réttarstöðu sem uppi var á milli þeirra, V ehf. sem leigutaka og E hf. sem leigusala, eftir að tímabundnum leigusamningi um atvinnuhúsnæði lauk samkvæmt efni sínu 1. apríl 2011. Óumdeilt var að V ehf. nýtti húsnæðið áfram til loka desember 2012 og greiddi leigu í samræmi við forsendur fyrrnefnds samnings. Í dómi Hæstaréttar kom fram að 59. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 yrði ekki túlkuð svo að á leigusala, eða eftir atvikum leigutaka, hvíldi skylda til formlegra aðgerða svo sem með sendingu tilkynningar með áskilnaði um framlengt gildi leigusamnings þegar því tímamarki væri náð að tveir mánuðir væru liðnir frá lokum tímabundins leigusamnings en húsnæðið áfram nýtt af leigutaka. Þvert á móti yrði talið að ákvæðið fæli í sér þann efnislega áskilnað sem leigusali eða leigutaki gæti haft uppi eftir að því tímamarki væri náð og án þess að til sérstakra formlegra tilkynninga kæmi af því tilefni. Ætti sá skilningur sér jafnframt stoð í meginreglu 10. gr. laganna. Með hliðsjón af framangreindu, samskiptum aðila á umræddu tímabili og að virtri kröfugerð E hf. var litið svo á að í gildi hefði verið ótímabundinn húsaleigusamningur með sex mánaða uppsagnarfrest, sbr. 3. tölulið 56. gr. laga nr. 36/1994, þegar V ehf. tilkynnti E hf. 31. desember 2012 um lok leigusambandsins af sinni hálfu.