Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 12. gr. laga nr. 88/1997 — Lög um fjárreiður ríkisins

Hæstiréttur birt 14. júní 2012

655/2011

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Vilhjálmi Skarphéðinssyni (Gestur Jónsson hrl)

Aðilar deildu um hvort Í bæri að greiða V tiltekna fjárhæð til efnda á samningi um starfslok sem V gerði við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum í tilefni af því að deild sú er hann starfaði á innan embættisins skyldi lögð niður. Hæstiréttur vísaði meðal annars til þess að við niðurlagningu starfs V hjá embættinu hefði honum, samkvæmt lögum, ekki verið ætlað að flytjast til nýs hlutafélags er tók við starfseminni og hefði hann því átt rétt til biðlauna á grundvelli laga nr. 70/1996. Þá hefði forstöðumaður embættisins verið bær að lögum til þess að gera samning við V um starfslok og Í ekki sýnt fram á að honum hefði verið skylt að leita sérstakrar heimildar á fjárlögum til þess að gera samninginn. Var niðurstaða héraðsdóms um greiðsluskyldu Í staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. september 2011

E-7453/2010

Vilhjálmur Skarphéðinsson (Gestur Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefndi, íslenska ríkið, dæmt til að greiða stefnanda eftirstöðvar samkvæmt starfslokasamningi. Ekki var fallist á þær málsástæður stefnda að lagaheimild skorti fyrir efni samningsins eða röngum aðila væri stefnt.