Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 36. gr. laga nr. 88/1989 — Þjóðminjalög

Landsréttur birt 7. febrúar 2020

263/2019

Íslenska ríkið og Minjastofnun Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn Friðjóni Guðjohnsen (sjálfur)

Ágreiningur aðila laut að því hvort Í bæri skaðabótaábyrgð gagnvart F vegna tjóns sem framkvæmd laga nr. 80/2012 um menningarminjar hefði valdið F með því að meina honum að nýta sér heimildir löglega samþykkts deiliskipulags vegna fasteignar hans. Við gildistöku laganna varð hús F friðað og honum því óheimilt að raska því, breyta, rífa það eða flytja úr stað nema með leyfi M, sbr. 29. gr. laga nr. 80/2012, en M hafði hafnað beiðni F um að afnema friðunina, sbr. 3. mgr. 29. gr. laganna. Fallist var á það með F að friðun hússins stæði því í vegi að hann gæti nýtt sér heimildir samkvæmt samþykktu deiliskipulagi með því að auka við byggingarmagn á lóðinni þar sem húsið stæði og þar með notið góðs af auknu verðmæti hússins og þeirra lóðarréttinda sem ætla mætti að leiddi af deiliskipulaginu. Þá var fallist á að skerðing á eignarréttindum F uppfyllti það skilyrði að vera veruleg og félli undir bótaákvæði 53. gr. laganna. Var því viðurkennd skaðabótaábyrgð Í á því tjóni sem framkvæmd laga nr. 80/2012 hefði valdið F.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2019

E-1245/2017

Friðjón Guðjohnsen (sjálfur ólöglærður) gegn íslenska ríkinu og Minjastofnun Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)
Lykilorð: Húsfriðun. Stjórnsýsla.

Fallist var á kröfu stefnanda, sem er eigandi fasteignar á Holtsgötu í Reykjavík, um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð stefnda íslenska ríkisins vegna framkvæmdar á lögum nr. 80/2012 um menningarminjar, en sú framkvæmd hafði í för með sér að stefnandi gat ekki nýtt sér rétt samkvæmt deiliskipulagi til að auka verulega byggingarmagn á lóð sinni. Við úrlausn málsins var sérstaklega litið til þess að umrædd réttindi samkvæmt deiliskipulagi höfðu komið til áður en lög nr. 80/2012 voru sett. Stefndi Minjastofnun Íslands hafnaði fyrir málshöfðunina beiðni um afnám friðunar umrædds húss, en sú ákvörðun var síðar staðfest með úrskurði forsætisráðuneytisins. Var þá orðið ljóst að stefnandi varð fyrir tjóni sem bæta bar samkvæmt 53. gr. laga nr. 80/2012. Var því fallist á viðurkenningarkröfu stefnanda.