Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 6. gr. laga nr. 86/1998 — Lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta og miskabóta vegna ráðningar í starf deildarstjóra.
K var skipuð kennari við grunnskóla R árið 1990. Á árunum 2001 til 2005 voru árlega gerðir við hana tímabundnir ráðningarsamningar í skólanum B þar sem K skyldi sinna starfi deildarstjóra tölvumála. Var hlutfall deildarstjórastarfs hennar í fyrstu 32,5% en síðustu tvö árin sinnti hún starfi deildarstjóra sem 100% starfi. Árið 2006 var ákveðið að leggja niður verkefni deildarstjóra tölvumála vegna endurskipulagningar. Í kjölfarið krafðist K biðlauna samkvæmt 14. gr. laga nr. 72/1996 um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda. Af hálfu skólans var kröfu hennar hafnað á þeim forsendum að verkefnið hefði verið tímabundið og hún ráðin í það frá ári til árs. Höfðaði K því mál þetta á hendur R. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að tímabundin ráðning hennar hefði ekki fellt úr gildi ótímabundna skipun í kennarastöðu sem K naut. Sú málsástæða K að líta ætti svo á að hún hefði samtímis gegnt tveimur opinberum stöðum, sem hvor um sig hefði veitt henni rétt til biðlauna, yrði hún lögð niður, þótti haldlaus. Var R því sýknað af kröfu K.
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um biðlaun, en stefnandi var skipaður grunnskólakennari og það starf var ekki lagt niður.
Stefndi sýknaður af launakröfu stefnanda, þar sem ráðningarsamningur stefnanda rann út 31. júlí 2005.