Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 6. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
Verulegir annmarkar þóttu vera á málsmeðferð kærunefndar útboðsmála og var úrskurður nefndarinnar felldur úr gildi að því leyti að hann kvað á um stjórnvaldsekt, að bjóða skildi út tiltekin innkaup og greiðslu málskostnaðar. Ekki voru taldar forsendur til þess að kærandi gæti aukið við kröfugerð sína og breytt henni með þeim hætti að kærunefnd útboðsmála hafi fallist á og þannig lagt málið í annan farveg en upphaflega kæra gaf tilefni til. Þá var talið að kærunefndinni hefði borið að vísa málinu frá nefndinni þar sem kærufrestur hefði verið liðinn er kærandi lagði fram upprunalega kæru sína. Auk þess hefði kærunefndin ekki tekið afstöðu til þess hvort fjárhæð þeirra viðskipta sem upphafleg kröfugerð kæranda laut að væri undir viðmiðunarfrjárhæðum þótt sterkar vísbendingar væru í þá veru. Þá var vísað frá dómi kröfum en vörðuðu ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frávísun á hluta krafna kæranda.
Fallist var á kröfu sóknaraðila um að varnaraðila yrði gert að afhenda sóknaraðila nánar tiltekin gögn á grundvelli úrskurðar úrskurðarnefndar upplýsingamála. Var úrskurður nefndarinnar talin gild aðfararheimild og í samræmi við lög. Þá var tekið fram að varnaraðili hefði ekki krafist þess fyrir dóminum að málskot til æðra dóms frestaði umbeðinni aðfarargerð og kom það því ekki til frekari umfjöllunar af hálfu dómsins.