Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 9. gr. laga nr. 82/2000 — Lög um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna
Deilt var um lögmæti þeirra skilyrða, sem forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins setti fyrir þátttöku í útboði um sjóflutninga fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Í b. lið 2. gr. reglugerðar sem sögð var sett á grundvelli laga nr. 82/2000 sagði að í orðunum „skip sem íslensk skipafélög gera út“ í samningi ríkjanna um sjóflutninga fælist, að skipin skyldu vera undir yfirstjórn og yfirráðum íslenskra skipafélaga. Í því fælist að íslensk skipafélög skyldu hafa húsbóndavald yfir áhöfn skipanna og ráðningarsamband við áhöfn þess. Hélt A því fram að fyrir síðara hluta ákvæðisins væri engin stoð í lögunum. Var A talinn hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, þrátt fyrir að útboðinu hafi lokið fyrir aðaðmeðferð málsins í héraði. Hvorki umræddur samningur ríkjanna né lög nr. 82/2000 skilgreindu hvað væru skip sem íslensk skipafélög gera út. Í lögunum fólst eingöngu hvað teldist íslenskt skipafélag og uppfyllti A öll ákvæði laganna þar um. Talið var að í síðari málslið umdeilds ákvæðis væri fólgin takmörkun á því hvaða rekstrarfyrirkomulag mætti vera á útgerð skipanna. Ekki yrði mælt fyrir um slíka takmörkun í reglugerð án skýrrar heimildar um efni og umfang hennar í settum lögum frá Alþingi. Af þessu leiddi að lagaheimild brast til setningar hins umdeilda skilyrðis.
Kærumál. Kröfugerð. Vanreifun. Lögvarðir hagsmunir. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi að hluta. Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A ehf. var vísað frá dómi. Var kröfugerð félagsins í tveimur liðum þar sem þess var annars vegar krafist að viðurkennt yrði að forvalsnefnd væri óheimilt að setja nánar tiltekin skilyrði fyrir vali á íslenskum fyrirtækjum vegna vöruflutninga milli Íslands og Bandaríkjanna og hins vegar að málsmeðferð forvalsnefndar yrði ógilt. Fallist var á með A ehf. að það hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn fyrir dómi um lögmæti þeirra skilyrða, sem því var gert að hlíta til að fá að taka þátt í útboðinu. Yrði að líta til þess að í bréfi til A ehf. hefði því verið lýst yfir að tilkynning til Bandaríkjahers um heimild félagsins til að taka þátt í útboðinu yrði afturkölluð 10 dögum fyrir lok tilboðsfrests hefði það þá ekki staðið við sett skilyrði. Hin umdeildu skilyrði væru því enn í gildi að því er varðaði heimild félagsins til að fá að taka þátt í útboðinu. Var úrskurðurinn að því er varðaði þennan kröfulið felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka hann til efnismeðferðar. Hins vegar var úrskurður héraðsdóms staðfestur varðandi síðari lið kröfugerðarinnar sem ekki var talinn vera í samræmi við skilyrði e- liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991.