Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 13. gr. laga nr. 80/1994 — Lög um alferðir
A krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda K ehf. vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í hestaferð á vegum K ehf. þegar hestur sem hún sat tók á rás með þeim afleiðingum að hún féll af baki. Fyrir lá að hesturinn hafði áður en atvikið átti sér stað verið fluttur á vegum K ehf. í hestakerru um 30 kílómetra leið og síðan verið komið fyrir í um klukkustund í gerði með hrossum sem sum voru honum ókunn. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að fyrirvarsmaður K ehf., sem hafði mikla reynslu af hestamennsku og próf í tamningum, hefði borið fyrir dómi að mögulegt væri að kerruferðin hefði orsakað streitu hjá hestinum, auk þess sem það kynni að valda ótta hjá hesti að fara í ókunnugt stóð. Þá hefði vitni borið að um leið og A hefði sest á hestinn hefði hann rokið æstur af stað á næsta hóp af hestum og fest þar milli beisla áður en hann hélt áfram. Meðal annars með tilliti til þessa var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að meta yrði K ehf. það til gáleysis að hesturinn hefði verið látinn undir A nánast strax eftir komu hans á staðinn þar sem atvikið átti sér stað.
Guðmunda Björk Hjaltested (
Eiríkur Gunnsteinsson hrl)
gegn
Kálfholti hestaferðum ehf, Vátryggingafélagi, Íslands hf, til og réttargæslu
Stefndi talinn bera ábyrgð á líkamstjóni stefnanda sem varð er hestur sem stefndi útvegaði stefnanda í skipulagðri hestaferð rauk af stað með hana.
Skaðabótamál
D krafði F hf. um greiðslu bóta á grundvelli 13. gr. laga nr. 80/1994 um alferðir vegna áverka í andliti er hún hlaut árið 1999 í alferð, sem hafði verið keypt hjá félaginu. Hlaut D áverkana er hún rakst í kafi í stiga við sundlaug gistihússins þar sem hún dvaldist. Ekki var talið að viðhlítandi gögn lægju fyrir um tildrög slyssins og aðstæður í sundlauginni. Þótti því ósannað að slysið yrði rakið til vanbúnaðar á stiganum og var F hf. því sýknað af kröfu D.