Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 10. gr. laga nr. 80/1994 — Lög um alferðir
J, sem keypt hafði utanlandsferð hjá ferðaskrifstofunni Í ehf., varð fyrir fjártjóni þegar Í ehf. skilaði starfsleyfi sínu og lýsti því yfir að grundvöllur fyrir rekstrinum væri ekki lengur fyrir hendi. Krafðist J þess að fá tjón sitt bætt úr sérstakri tryggingu sem ferðaskrifstofum bar að setja vegna starfsemi sinnar. Þrátt fyrir skýr fyrirmæli 5. gr. reglugerðar nr. 281/1995 um að lágmarkstrygging skyldi vera 10.000.000 krónur hafði samgönguráðuneytið ekki krafið Í ehf. um hækkun 6.000.000 króna tryggingar sem félagið hafði sett fyrir gildistöku reglugerðarinnar. Kröfur vegna innborgana á ferðir með Í ehf., sem ekki nýttust, og kostnaður við heimflutning farþega rúmuðust innan þeirrar tryggingarfjárhæðar sem ráðuneytinu bar að sjá til að félagið setti. Var fallist á með J, að vanræksla ráðuneytisins hefði valdið honum tjóni og var krafa hans var samkvæmt því tekin til greina.
Héraðsdómur var ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju, þar sem ekki hafði verið fylgt fyrirmælum síðari málsliðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991. Að gefnu tilefni var tekið fram að rétt hefði verið að bóka í þingbók yfirlýsingar aðilanna um að ekki væri þörf á að flytja málið á ný eða leggja fram á dómþingi við uppkvaðningu dómsins bréflegar yfirlýsingar þeirra um þetta.