Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 8/1986 — Sveitarstjórnarlög
B höfðaði mál gegn R, S og Í og krafðist þess að felldar yrðu úr gildi þrjár samþykktir byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 2018 um að minnka lóðina Hátún 10 og stofna þar tvær nýjar lóðir, Hátún 12 og 14. Í dómi Landsréttar var rakið að gögn málsins væru misvísandi um hvort lóðarhafar að lóðinni hefðu álitið, þegar umrædd afgreiðsla fór fram, að um eina óskipta lóð væri að ræða eða að henni hefði verið skipt samkvæmt samkomulagi hlutaðeigandi og fyrri afgreiðslum R. Við þær aðstæður hafi R borið að gæta að því, áður en til afgreiðslu málsins kom, að atvik þess væru að þessu leyti upplýst með fullnægjandi hætti, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá yrði ekki ráðið af gögnum málsins að nægjanlega hafi verið gætt að rétti B samkvæmt 13. gr. sömu laga til að kynna sér gögn málsins, tjá sig um þær upplýsingar sem lágu fyrir og koma að frekari upplýsingum og viðhorfum áður en til afgreiðslunnar kom. Ekki yrði ráðið hvort samþykktirnar 2018 hafi falið í sér nýja afgreiðslu á grundvelli eldri einkaréttarlegrar umsóknar eða staðfestingu fyrri ákvarðana R. Óljóst væri hvaða réttaráhrif afgreiðslunni var ætlað að hafa umfram þær ákvarðanir sem þegar höfðu verið teknar. Þá hafi ekki reynst unnt að hrinda í framkvæmd þeim ráðstöfunum sem þar var mælt fyrir um en breytingar á lóðarmörkum hafi ekki fengist þinglýst. Óhjákvæmilegt væri að R bæri hallann af því að samþykktirnar hafi ekki verið svo skýrar sem skyldi og af þeirri óvissu sem af því leiddi. Málsmeðferð R og sú stjórnvaldsákvörðun sem fólst í umræddum samþykktum var talin haldin slíkum annmörkum að ekki yrði hjá því komist að fallast á kröfu B um að fella samþykktirnar úr gildi.
Stefndu voru sýknaðir af kröfu stefnanda um að felldar yrðu úr gildi tilteknar samþykktir byggingafulltrúa um að minnka mörk lóðar og stofna tvær nýjar lóðir.