Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 19. gr. laga nr. 79/2008 — Lög um endurskoðendur
Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (
Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (
Tómas Jónsson lögmaður)
Þrotabú SS hf. höfðaði mál á hendur E&Y ehf. og R og krafðist greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir þegar R, í starfi sínu sem endurskoðandi hjá E&Y ehf., hafði staðfest við hlutafélagaskrá að 25.000.000 króna hlutafjárhækkun í Geysi Capital ehf., sem USI Holding B.V. hafði skráð sig fyrir árið 2014, hefði verið „greidd með peningum“. Geysir Capital ehf. og SS hf. höfðu síðar sameinast árið 2017 en orðið gjaldþrota ári síðar. Byggði þrotabú SS hf. á því að 18.000.000 króna af hlutafjárhækkuninni hefðu aldrei verið greiddar, útséð væri um innheimtu þess fjár vegna gjaldþrots USI Holding B.V. og að R hefði valdið félaginu tjóni að framangreindri fjárhæð með umræddri tilkynningu. E&Y ehf. og R byggðu á hinn bóginn meðal annars á því að þó að mistök hefðu verið gerð er tilkynningin var send hlutafélagaskrá væri ósannað að nokkurt tjón hefði hlotist af því, en hlutafjárhækkunin hefði að hluta verið greidd með peningum og að hluta með skuldajöfnuði í kjölfar skuldskeytingar á skuld Geysis Capital ehf. við SS hf. að fjárhæð ríflega 18.000.000 króna. Í dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að framangreind tilkynning um hækkun á hlutafé hefði ekki samræmst ákvæðum 26. og 28. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og að R hefði þannig sýnt af sér saknæma háttsemi sem E&Y ehf. væri meðábyrgt fyrir á grundvelli reglna um vinnuveitandaábyrgð. Á hinn bóginn var talið að þó að áhöld væru um hvort nefnd skuldskeyting og greiðsla USI Holding B.V. á hlutafjáraukningu hefði farið að öllu leyti fram með réttum og löglegum hætti, þannig að þær ráðstafanir væru gildar í kröfuréttarlegu tilliti, þá bæru málsgögn með sér að Geysir Capital ehf. hefði losnað undan framangreindri skuld sinni auk þess sem ekkert benti til annars en að litið hefði verið svo á að hlutafjáraukningin væri að fullu greidd. Þannig væri ósannað að SS hf. hefði orðið fyrir tjóni vegna háttsemi R og E&Y ehf. Var héraðsdómur samkvæmt framangreindu staðfestur um sýknu R og E&Y ehf.
Stefndu sýknaðir af bótakröfu þrotabús vegna tilkynningar endurskoðanda til fyrirtækjaskrár vegna hlutafjárhækkunar.
Stefnandi krafði stefnda um skaðabætur vegna tjóns sem rakið varð til þess að starfsmaður stefnanda dró sér fé úr sjóðum þess á tilteknu tímabili. Því var haldið fram að stefndi, sem endurskoðaði ársreikninga félagsins á þessu tímabili, bæri bótaábyrgð á fjártjóninu þar sem ekki hefðu verið viðhöfð rétt vinnubrögð við endurskoðun ársreikninga og hefði því ekki komist upp um fjárdráttinn fyrr en raun bar vitni. Ekki var talið sýnt fram á að starfsmenn stefnda hefðu brugðist skyldum sínum eða gert mistök við endurskoðun á ársreikningum stefnanda sem gætu leitt til bótaskyldu. Þegar af þeirri ástæðu var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.