Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 77/1993 — Lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum

Landsréttur birt 27. október 2022

302/2021

Kristín Björg Kristjánsdóttir (Gestur Jónsson lögmaður) gegn Íslandspósti ohf (Andri Andrason lögmaður)

K starfaði hjá Póst- og símamálastofnun til 1997 er hún tók við starfi hjá P hf. við hlutafélagvæðingu stofnunarinnar. Við skiptingu P hf. ári síðar varð hún starfsmaður Í ohf. K var sagt upp störfum hjá Í ohf. 21. október 2019 vegna skipulagsbreytinga. Hún höfðaði mál til innheimtu biðlauna eða bóta úr hendi Í ohf. vegna starfsloka sinna. Um rétt sinn til biðlauna vísaði K til 1. mgr. 8. gr. laga nr. 103/1996 um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar og 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og einnig til ráðningarsamnings sem tók gildi 1. janúar 1997 þar sem fram kom að áunnin bótaréttur (biðlaunaréttur) hennar væri 6 mánuðir. Í ohf. var sýknað af kröfum K í héraði. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að 8. gr. laga nr. 103/1996 hafi átt að tryggja að þeir starfsmenn Póst- og símamálastofnunar, sem ráðnir yrðu til starfa hjá Pósti og síma hf., héldu áunnum réttindum í starfi sínu hjá hlutafélaginu, þar á meðal biðlaunaréttinum. Þó bar að fara eftir nýsamþykktum lögum nr. 70/1996 um inntak og nánari skilmála biðlaunaréttinda þeirra hjá félaginu, en ekki eldri lögum um sama efni. Hlutu ráðningarsamningar sem gerðir voru við starfsmennina um störf þeirra hjá hlutafélaginu að taka mið af efni og tilgangi 8. gr. laga nr. 103/1996. Þótt lögin hefðu verið felld úr gildi með lögum nr. 75/2001 haggaði það ekki skuldbindingum stefnda samkvæmt samningum og fyrrgreindu lagaákvæði. Var því lagt til grundvallar að K ætti á grundvelli ráðningarskilmála sinna hjá Í ohf. rétt til greiðslu bóta samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996, að því gefnu að skilyrði ákvæðisins væru fyrir hendi. Mótbárum Í ohf. við því að þeim skilyrðum væri fullnægt var hafnað. Aftur á móti var talið að K hefði ekki áunnið sér meiri bótarétt en hún hafði öðlast í gildistíð eldri laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Því var fallist á þrautavarakröfu K sem tók mið af því að hún ætti rétt til bóta vegna niðurlagningar á starfi sínu hjá Í ohf. er næmi óbreyttum launum í 6 mánuði frá starfslokum að frádregnum launatekjum hennar á þeim tíma.

Hæstiréttur birt 17. október 2002

165/2002

Bónusvideó ehf (Haraldur Blöndal hrl) gegn Sigrúnu Steinarsdóttur (Ástráður Haraldsson hrl)

Í málinu reyndi á ábyrgð B samkvæmt þágildandi lögum nr. 77/1993 um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum vegna kaupa hans á félaginu Videolandi og rekstri þess. Með vísan til forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða hans um að réttindi og skyldur fyrri eiganda félagsins hafi færst yfir á B við eigendaskiptin, sbr. 1. mgr. 2. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 77/1993. Að því virtu hvernig B hafði hagað málatilbúnaði sínum gat síðbúin varakrafa hans um lækkun krafna S ekki komið til álita við úrlausn málsins. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var hann staðfestur.