Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 72. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 15. mars 2007

455/2006

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Karl Axelsson hrl, Ragnheiður M. Ólafsdóttir hdl)
Lykilorð: Skattur. Lögskýring.
Málaflokkur: Skattaréttur

Deilt var um hvort breyting á 80. gr. orkulaga nr. 58/1967, sem gerð var með 3. gr. laga nr. 78/2001, hafi undanþegið O skyldu til að greiða skatt af fjármagnstekjum sem felld hafði verið á hann með breytingu á 72. gr. þágildandi laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þeir aðilar sem tilgreindir voru í 80. gr. orkulaga eins og hún hljóðaði í upphafi, hafi notið skattfrelsis allt frá gildistöku laga nr. 75/1981. Með 4. mgr. 72. gr. laga nr. 75/1981, eins og henni var breytt með 10. gr. laga nr. 97/1996, hafi þeim aðilum sem tilgreindir voru í 80. gr. orkulaga, þó verið gert að greiða tekjuskatt af fjármagnstekjum. Með þeirri breytingu á 80. gr. orkulaga, sem gerð var með 3. gr. laga nr. 78/2001, var mælt fyrir um að sömu reglur og fyrir voru í greininni skyldu jafnframt gilda um hitaveitu og rafveitur, sem fullnægðu nánar tilteknum skilyrðum, en óumdeilt er að O féll þar undir. Var því ljóst að á O hvíldi skylda til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Var kröfu O um endurgreiðslu vegna fjármagnstekjuskatt sem O hafði þegar innt af hendi því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. maí 2006

E-4732/2005

Orkuveita Reykjavíkur (Garðar Guðmundur Gíslason hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Fallist var á að stefnandi naut undanþágu frá fjármagnstekjuskatti samkvæmt orkulögum. Var stefndi dæmdur til að endurgreiða fjármagnstekjuskatt sem stefnanda var gert að greiða vegna þess hluta starfsemi hans sem snýr að rekstri hitaveitu og rafmagnsveitu á árinu 2002.