Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 4. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
H ehf. krafði R um skaðabætur vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna kostnaðar sem það greiddi vegna fyrirhugaðra framkvæmda á lóð félagsins. Byggði H ehf. m.a. á því að R hefði með óvandaðri og rangri málsmeðferð við breytingu á deiliskipulagi valdið honum tjóni, en úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi úr gildi ákvörðun skipulagsráðs R um breytingu á skipulaginu. Var það mat Hæstaréttar að H ehf. hefði ekki fært sönnur á, að sú ákvörðun starfsmanna R að haga málsmeðferð vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi með tilteknum hætti, teldist saknæm og skyldi baka R skaðabótaábyrgð. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu R.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um bætur fyrir útlagðan kostnað vegna fyrirhugaðra framkvæmda við fasteign hans.