Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 39. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 18. desember 2008

204/2008

Jóhann Hauksson (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn Pétri Geirssyni (Guðrún Helga Brynleifsdóttir hrl)

J leigði landspildu úr jörð sem var í óskiptri sameign 10 einstaklinga í mismunandi eignarhlutföllum. Á landspildunni var sumarhús og fékk J byggingarleyfi fyrir stækkun sumarhússins og hóf þegar framkvæmdir. P, sem var einn af eigendum jarðarinnar, krafðist þess að samþykkt skipulags- og byggingarnefndar um veitingu byggingarleyfis fyrir stækkun sumarhússins og staðfesting sveitarstjórnar yrðu felldar úr gildi og að byggingarleyfi til handa J yrði ógilt. Talið var að sveitarstjórn hafi verið óheimilt að samþykkja útgáfu byggingarleyfisins þar sem samþykki sameiganda að jörðinni lá ekki fyrir, svo sem áskilið er í 4. mgr. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Þá var talið að J hafi hlotið að vera ljóst að vafi léki á um framtíðargildi byggingarleyfisins og hafi hann því ekki verið í góðri trú. Ekki var fallist á að P hafi sýnt af sér tómlæti, enda hafi hann strax lýst andstöðu sinni við framkvæmdirnar og leitað ráða til að stöðva þær. J var ekki talinn hafa sýnt fram á að sú regla hafi myndast í samskiptum sameigendanna að ekki væri þörf á samþykki fyrir endurbótum eða viðbyggingum á sumarhúsum á jörðinni. Var því fallist á kröfur P og byggingarleyfi til handa J ógilt.

Hæstiréttur birt 16. júní 2005

46/2005

Guðmundur Geir Gunnarsson, Ingibjörg Snorradóttir, Pétur Stephensen (Gísli Baldur Garðarsson hrl) og Sigríður Sigurðardóttir (Hilmar Gunnlaugsson hdl) gegn Katrínu Hákonardóttur (Guðjón Ólafur Jónsson hrl, Ása Ólafsdóttir hdl)

Byggingarfulltrúinn í R veitti K 8. apríl 2003 byggingarleyfi til að reisa bílskúr og var ákvörðunin staðfest af borgarstjórn R 30. sama mánaðar. G o.fl. gerðu athugasemdir við leyfið í bréfi til byggingarfulltrúa 19. maí 2003, en þau kærðu ekki ákvörðunina til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála fyrr en með bréfi 14. júlí 2003. K beið í 30 daga frá því að borgarstjórn staðfesti byggingarleyfið og fór þá 30. maí 2003 á skrifstofu nefndarinnar, þar sem hún fékk þær upplýsingar, að engin kæra hefði borist. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að úrskurðarnefndinni hefði ekki verið heimilt að taka erindi G o.fl. til efnislegrar meðferðar, með því að kærufrestur hafi verið útrunninn. Var því fallist á kröfur K um að úrskurður úrskurðarnefndarinnar yrði felldur úr gildi, og ákvörðun byggingarfulltrúa staðfest.