Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 32. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 6. desember 2012

329/2012

Hrunamannahreppur (Helgi Jóhannesson hrl) gegn Árna Hjaltasyni (Klemenz Eggertsson hdl)

Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar tók sveitarfélagið H ákvörðun 5. nóvember 2008 um að taka tiltekið land Á eignarnámi. Var sú ákvörðun tilkynnt Á með bréfi næsta dag. Í kjölfar ábendinga til Skipulagsstofnunar um að umsögn hennar hefði verið byggð á ófullkomnum gögnum dró hún umsögn sína til baka og veitti nýja, þar sem fallist var á eignarnám á hluta þess lands sem um ræddi. Tók H aftur ákvörðun 7. janúar 2009 um eignarnám á landi Á á grundvelli nýrrar umsagnar Skipulagsstofnunar og var ákvörðunin tilkynnt Á með bréfi 2. mars 2009. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, sagði meðal annars að verulegir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð hreppsnefndar H. Þannig hefði Á ekki verið kynnt ný umsögn Skipulagsstofnunar. Fyrri ákvörðun H hefði ekki verið afturkölluð þó fyrir lægi að hún stæðist ekki skilyrði þágildandi skipulags- og byggingarlaga. Á hefði ekki verið tilkynnt um að mál hans væri á ný til meðferðar hjá H, sbr. 14. gr. stjórnsýslulaga. Þá hefði H ekki leitað eftir að ná samkomulagi við Á eftir að ný umsögn Skipulagsstofnunar lá fyrir. Loks hefði Á ekki verið gefinn kostur á að tjá sig um málið áður en ný ákvörðun hefði verið tekin á grundvelli nýrra gagna og upplýsinga og hefði þannig verið brotið gegn andmælarétti hans samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga. Var því fallist á kröfu Á um ógildingu ákvörðunar H frá 7. janúar 2009 um að taka land hans eignarnámi.