Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 23. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 22. nóvember 2012

138/2012

Arngunnur Regína Jónsdóttir og Helgi Rúnar Rafnsson (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Birni Andrési Bjarnasyni (Ívar Pálsson hrl, Daníel Isebarn Ágústsson hdl)

Eigendur fasteignar í Húsahverfi í Reykjavík, A og H, höfðuðu mál á hendur nágranna sínum, B, og kröfðust þess að honum yrði gert að fjarlægja viðbyggingu af húseign sinni, sem hann hafði reist á grundvelli byggingarleyfis frá sveitarfélaginu R, að viðlögðum dagsektum. Með dómi Hæstaréttar 22. nóvember 2012 í máli nr. 137/2012 var felld úr gildi breyting R á tilteknum skilmálum deiliskipulags í hverfinu, en byggingarleyfi til handa B hafði verið gefið út á grundvelli breytingarinnar. Krafa A og H var tekin til greina í samræmi við 2. mgr. 56. gr. þágildandi skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með vísan til þess að B hefði reist viðbygginguna með stoð í byggingarleyfi sem bryti í bága við skipulag og að hann yrði að bera áhættuna af því að verðmæti kynnu að fara forgörðum, enda hefði hann verið grandsamur um að A og H myndu leita úrræða til að fá hana fjarlægða allan þann tíma sem byggingarleyfi hans var til umfjöllunar hjá R og meðan á framkvæmdum við viðbygginguna stóð.

Hæstiréttur birt 22. nóvember 2012

137/2012

Arngunnur Regína Jónsdóttir og Helgi Rúnar Rafnsson (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

Eigendur fasteignar í Húsahverfi í Reykjavík, A og H, höfðuðu mál á hendur sveitarfélaginu R og kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun borgarráðs um að breyta skilmálum deiliskipulags í hverfinu. Fallist var á með A og H að R hefði verið óheimilt að breyta skipulagi svæðis þar sem framkvæmt hefði verið í ósamræmi við skipulag fyrr en ólögleg bygging, eða byggingarhluti, hefði verið fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt, sbr. 4. mgr. 56. gr. þágildandi skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, en í málinu var upplýst að stærð margra húseigna í fyrrgreindu hverfi hefði verið í andstöðu við gildandi skipulag. Var krafa A og H því tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. febrúar 2012

E-3216/2011

Arngunnur Regína Jónsdóttir og Helgi Rúnar Rafnsson (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Birni Andrési Bjarnasyni (Ívar Pálsson hrl)
Lykilorð: Grennd. Skipulag.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnenda um fjarlægingu viðbyggingar húss síns. Krafan byggði á því, að deiliskipulagsbreyting Reykjavíkurborgar hefði verið ólögmæt, sem ekki var fallist á.