Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 18. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
Felld úr gildi breyting á aðalskipulagi, sem staðfest var af umhverfisráðherra og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Með nýju aðalskipulagi, sem samþykkt var á árinu 2007, var flugvöllurinn á Ó felldur út af skipulagi en H hafði á árinu 1987 fengið leyfi til byggingar flugskýlis við flugvöllinn. Í málinu krafðist H þess að F leysti til sín flugskýlið og greiddi honum innlausnarverð sem byggði á matsgerð dómkvadds matsmanns. Féllst Hæstiréttur á kröfu H um að F innleysti flugskýlið þar sem breytt skipulag væri ástæða þess að H gæti ekki lengur nýtt það eins og hann ætlaði þegar hann byggði það og breytingin væri til þess fallin að rýra verðgildi flugskýlisins. Á hinn bóginn var hafnað kröfu H um að F væri gert skylt að greiða honum innlausnarverð á grundvelli matsgerðar þar sem sú krafa væri ekki í samræmi við ákvæði 3. mgr. 33. gr. þágildandi skipulagslaga nr. 73/1997 um skyldu matsnefndar eignarnámsbóta til að ákveða kaupverð.
Hjörtur Þór Hauksson gegn
Fjallabyggð, kveðinn og upp svohljóðandi
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um að honum yrði gert skylt að innleysa flugskýli á flugvellinum á Ólafsfirði, sem hafði verið aflagður. Ennfremur sýknaður af varakröfu um skaðabætur vegna þess að flugskýlið nýttist ekki sem slíkt, eftir að flugvöllurinn var lagður niður.
Kærumál. Skipulag. Lögvarðir hagsmunir. Frávísunarúrskurður héraðsdóms felldur úr gildi. ÞI og ÞT kærðu úrskurð héraðsdóms að því leyti sem kröfu þeirra á hendur G, um ógildingu á breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kiðjabergs í G, var vísað frá dómi. Héraðsdómur taldi, að þar sem ÞI og ÞT hefðu ekki gert athugsemdir við tillögur í auglýsingu um þessar breytingar, hefðu þau ekki lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr kröfu sinni. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að ætlaður skortur á athugasemdum ÞI og ÞT við skipulagstillöguna skipti ekki máli við mat á því hvort þau hefðu lögvarða hagsmuni af kröfu sinni. Um væri að ræða málsástæðu sem snerti efnislega úrlausn ágreinings málsaðila. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka kröfu ÞI og ÞT til efnislegrar meðferðar.