Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum (byggðakvóti og framlenging bráðabirgðaákvæða). nr. 72/2016
Ú ehf. og S hf. höfðuðu mál til viðurkenningar á skaðabótaábyrgð Í á tjóni sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir vegna úthlutunar á sérstökum byggðakvóta á Þingeyri sex tiltekin fiskveiðiár. Með ákvörðun Byggðastofnunar á árinu 2018 var umsókn Ú ehf. og S hf. um úthlutun þessara viðbótaraflaheimilda hafnað. Í framhaldi af því gerði stofnunin samning við fiskvinnslufyrirtæki með starfsstöð á Þingeyri og tilteknar útgerðir, þar á meðal. smábátasjómenn, á Þingeyri. Í dómi Landsréttar kom fram að málefnaleg sjónarmið hefðu legið að baki ákvörðun Byggðastofnunar um að hafna umsókn Ú ehf. og S hf. og ganga til samninga við aðra umsækjendur, en sú ákvörðun hafi byggst á hinum sérstöku matskenndu sjónarmiðum sem byggju að baki 10. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og reglugerðar nr. 643/2016, en þar sé horft til verndunar brothættra sjávarbyggða. Þá var því jafnframt hafnað að með ákvörðuninni hefði verið brotið gegn 10., 11. og 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Var Í því sýknað af kröfum Ú ehf. og S hf.
Talið var að ráðstöfun Byggðastofnunar á aflaheimildum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi hefði hvorki verið bersýnilega röng né byggð á ómálefnalegum sjónarmiðum. Farið hefði fram heildstæður samanburður á umsækjendum og gætt að rannsóknar-, jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Talið var að Byggðastofnun hefði ákveðið svigrúm við mat á umsækjendum á grundvelli þeirra sjónarmiða sem búa að baki úthlutun. Var viðurkenningarkröfu stefnanda um skaðabótaábyrgð því hafnað.