Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., nr. 72/1994, með síðari breytingum (innleiðing tilskipunar og viðurlagaákvæði). nr. 7/2015

Landsréttur birt 29. apríl 2025

1013/2024

Samskip hf (Hörður Felix Harðarson lögmaður) gegn Eimskipafélagi Íslands hf og Vilhelm Má Þorsteinssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli S hf. á hendur E hf. og V var vísað frá dómi. S hf. krafðist þess í málinu að viðurkennd yrði óskipt bótaábyrgð E hf. og V á tjóni sem hann hefði orðið fyrir vegna nánar tilgreindrar sáttar E hf. við Samkeppniseftirlitið. Í úrskurði Landsréttar var rakið að ekki yrði talið að S hf. hefði leitt nægar líkur að því að hann hefði orðið fyrir tjóni sem orsakast hefði af skaðabótaskyldum verknaði E hf. og V þannig að hann yrði talinn hafa lögvarða hagsmuni í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála af því að fá leyst úr viðurkenningarkröfum sínum fyrir dómi. Þá gæti S hf., eins og málið lægi fyrir, ekki talist hafa gert grein fyrir því með fullnægjandi hætti hver tengsl atvika þess væru við ætlað tjón hans, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 og einnig e-lið 1. mgr. 80. gr. sömu laga. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur um annað en málskostnað.