Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 13. gr. laga nr. 69/2003 — Lög um Póst- og fjarskiptastofnun
Með ákvörðun 29. desember 2017 útnefndi forveri F M ehf. sem alþjónustuveitanda og lagði á hann alþjónustukvöð í samræmi við nánar greind „ákvörðunarorð“. Í ákvörðunarorðunum kom meðal annars fram að útnefningin gilti til og með 31. desember 2020 en heimilt væri að framlengja útnefningartímabilið til 31. desember 2022 með tilkynningu F til M ehf. þar að lútandi. Í tilkynningu F til M ehf. 31. ágúst 2020 kom fram að F hefði ákveðið að framlengja gildistíma þeirra alþjónustukvaða sem hvíldu á M ehf. til 31. desember 2022. M ehf. kærði umrædda ákvörðun 31. ágúst 2020 til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála sem vísaði kærunni frá með úrskurði. Byggði niðurstaða úrskurðarnefndarinnar á því að í ákvörðun F 31. ágúst 2020 hefði ekki falist stjórnvaldsákvörðun heldur hefði framlenging alþjónustukvaðar sem hvíldi á M ehf. byggst á ákvörðun F 29. desember 2017. Ágreiningur aðila fyrir Landsrétti laut að því hvort framangreind ákvörðun 31. ágúst 2020 um að framlengja gildistíma alþjónustukvaða væri stjórnvaldsákvörðun í skilningi laga sem kæranleg hefði verið til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Í dómi Landsréttar kom fram að af efni tilkynningar F 31. ágúst 2020 væri ljóst að horft hefði verið til fleiri þátta en þess hvort áform um niðurlagningu PSTN kerfisins hefðu gengið eftir. Þannig hefði F lagt mat á hvort lagabreytingar, sem gerðu alþjónustu tæknilega hlutlausa, hefðu haft þýðingu fyrir þær alþjónustuskyldur sem hvíldu á M ehf, í hvaða mæli framfarir í háhraða farnetsþjónustu og ljósleiðaratenginga í strjálbýli væru komnar fram og hvort þær hefðu þýðingu fyrir þessar sömu alþjónustuskyldur. Á grundvelli þess mats hefði F tekið ákvörðun í málinu sem hafði þýðingu fyrir rétt og skyldur M ehf. og yrði henni þannig öldungis jafnað til nýrrar bindandi stjórnvaldsákvörðunar sem M ehf. hefði sérstaka, verulega og lögvarða hagsmuni af að fá endurskoðaða. Sætti ákvörðunin því kæru til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. Samkvæmt því var úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála felldur úr gildi.
Stjórnvaldsúrskurður felldur úr gildi.
Kröfum stefnanda um ógildingu stjórnvaldsákvörðunar og skaðabætur vísað frá dómi vegna rangrar tilgreiningar á fyrirsvarsmanni stefnda.