Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 21. gr. laga nr. 68/1995 — Lög um Lúganósamninginn um dómsvald og um fullnustu dóma í einkamálum
Kærumál. Gerðardómur. Litis pendens áhrif. Lúganósamningurinn. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Frestun. F höfðaði í desember 2003 mál hér á landi gegn E og J til heimtu skuldar samkvæmt skuldaviðurkenningu, sem E og J gáfu út til tryggingar á efndum greiðsluskyldu E samkvæmt fjármögnunarsamningi við F. Talið var að krafa um frávísun málsins vegna gerðardómsákvæðis í fjármögnunarsamningnum hafi verið of seint fram komin og varð málinu ekki vísað frá héraðsdómi af þeim sökum. Í október 2002 hafði F, ásamt S, höfðað mál gegn E og A fyrir portúgölskum dómstól, þar sem F krafðist þess meðal annars að E greiddi skuld sem F rakti til fyrrnefnds fjármögnunarsamnings. Var ekki talið að kröfurnar í þessum tveimur dómsmálum væru reistar á sömu málsástæðum og voru því ekki efni til að vísa málinu frá dómi vegna ákvæðis 2. mgr. 21. gr. Lúganósamningsins. Kröfurnar töldust hins vegar skyldar í skilningi 3. mgr. 22. gr. samningsins. Skilyrði frávísunar samkvæmt 2. mgr. 22. gr. voru þó ekki uppfyllt en meðferð málsins hér á landi var frestað samkvæmt 1. mgr. sama ákvæðis þar til leyst hefði verið úr málinu sem rekið var í Portúgal á fyrsta dómstigi.