Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 17. gr. laga nr. 64/2006 — Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Hæstiréttur birt 26. júní 2024

54/2023

Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (Geir Gestsson lögmaður) gegn BD30 ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (Tómas Jónsson lögmaður)

Þrotabú S hf. höfðaði mál til heimtu skaðabóta úr hendi R og B ehf. á þeim grundvelli að þegar hlutafé í T hf. var hækkað tíu sinnum frá maí 2013 til febrúar 2015, samtals um 1.795.857.801 krónu, hefðu R og annar endurskoðandi sem B ehf. bæri ábyrgð á samkvæmt reglunni um vinnuveitendaábyrgð sýnt af sér saknæma vanrækslu. Tilkynningum um hlutafjárhækkun til fyrirtækjaskrár fylgdu í níu skipti staðfestingar R og í eitt skipti annars endurskoðanda B ehf. um að greiðslur hefðu borist fyrir hækkanirnar. Hæstiréttur vísaði til þess að greiðslur fyrir hlutaféð hefðu borist inn á reikninga T hf. í gegnum krónuútboð Seðlabanka Íslands að frátalinni hlutafjárhækkun 12. júní 2014 sem ekki hefði verið skýrð að fullu. Hæstiréttur féllst á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms sem skipaður var sérfróðum meðdómanda að greiðslur að fjárhæð 1.747.674.708 krónur hefðu borist inn á bankareikninga T hf. og að R hefði á þessum tíma ekki haft nægt tilefni til að kanna nánar ráðstöfun fjármuna út úr félaginu. Voru R og B ehf. því sýknaðir af aðalkröfu þrotabús S hf. Þá var jafnframt staðfest niðurstaða Landsréttar um sýknu R og B ehf. af varakröfu þrotabús S hf. Um þrautavarakröfu á hendur R og B ehf. vísaði Hæstiréttur til þess að af dómaframkvæmd yrði ráðið að þegar fyrir lægi að sérfræðingur hefði orðið uppvís að saknæmri háttsemi við framkvæmd sérfræðistarfa yrði slakað á kröfum um sönnun fyrir því að hún hefði orsakað tjón og sönnunarbyrði jafnvel snúið um það atriði. Þetta ætti sérstaklega við þegar tjónþola væri erfitt um vik að sanna orsakasamband milli saknæmrar háttsemi og tjóns sem hann hefði orðið fyrir. Teldist þrotabú S hf. hafa leitt að því nægar líkur að fyrrnefnd tilkynning frá 12. júní 2014 hefði verið einn þeirra þátta sem lánadrottnar T hf. lögðu traust sitt á við töku ákvarðana í lögskiptum við félagið þannig að B ehf. yrði látinn bera hallann af því að hafa ekki sýnt fram á að tilkynningin hefði ekki leitt til tjóns fyrir þrotabú S hf. Með vísan til 2. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991 og þess að ekki hafði verið tekin afstaða til lýstra krafna í þrotabú T hf. var B ehf. sýknað að svo stöddu af þrautavarakröfu þrotabús S hf. og R sýknaður.