Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 38. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög
Vorið 2004 tók RÞ við ábúð af föður sínum á eignarhluta RR í jörðinni H, sem var í óskiptri sameign RR og annarra. Aðilar gerðu með sér byggingarbréf í desember 2005 þar sem meðal annars kom fram að stefndi skyldi hafa öll almenn leiguliðaafnot jarðarinnar með nánar tilgreindum undantekningum, en um réttindi hans og skyldur færi að öðru leyti eftir ábúðarlögum nr. 80/2004. Þá var jafnframt kveðið á um að úttekt ætti að fara fram á ástandi jarðarinnar, ræktunar og mannvirkja við upphaf ábúðar. Samkomulag tókst með aðilum um að ábúðinni lyki 1. júlí 2007. Úttektarmenn samkvæmt 39. gr. ábúðarlaga luku úttekt 30. nóvember sama ár vegna ábúðarloka R og samkvæmt henni var matsverð mannvirkja að frádreginni tiltekinni fjárhæð vegna þrifa og viðhalds, samtals 6.761.427 krónur. Ekki tókst samkomulag milli aðila um uppgjör vegna loka ábúðar RÞ og höfðaði hann af þeim sökum mál á hendur RR til greiðslu fjárhæðarinnar. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að öll mannvirki sem ágreiningur stæði á um hefðu verið reist áður en RÞ tók í raun við ábúð af föður sínum vorið 2004. Við leiguliðaskiptin á þeim tíma hafi úttekt ekki verið gerð og því bæri samkvæmt 38. gr. ábúðarlaga nr. 64/1976 að leggja til grundvallar að samkomulag hafi tekist á milli RR og RÞ um að RÞ tæki við réttindum föður síns vegna eigna og endurbóta á jörðinni á ábúðartíma hans. Þessu til samræmis færi um tilkall RÞ til greiðslu eftir reglum ábúðarlaga nr. 64/1976. Fallist var á kröfu RÞ um að RR bæri að greiða að fullu fyrir mannvirki sem tilgreint var í matsgerðinni sem „fjárhús/baggahús“, en hann hafði sérstaklega samþykkt byggingu þess auk matsliða, sem hann vefengdi ekki og voru í úttekt kenndir við mjaltabás, breytingar á mjólkurhúsi og flór í fjósi. Á hinn bóginn var því hafnað að RR bæri að greiða fyrir önnur tilgreind mannvirki enda væri ekki fullnægt skilyrðum 12. og 16. gr. eldri ábúðarlaga, sbr. ákvæði til bráðabirgða II við ábúðarlög nr. 80/2004. Til lækkunar kom gagnkrafa RR sem RÞ hafði viðurkennt og tilgreindir frádráttarliðir, en ekki var fallist á með RR að félagið gæti beitt skuldajöfnuði vegna greiðslu tilgreindrar veðskuldar, sem RÞ var upphaflega skuldari að. Samkvæmt framansögðu var fallist á kröfu RÞ að hluta og RR gert að greiða honum 3.811.108 krónur.