Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984. nr. 62/1995
Ákærða ekki gerð sérstök refsing í þessu máli.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Vigni Arnarsyni
V, sem stýrði báti án vélstjórnarréttinda og var einn í áhöfn var ákærður fyrir brot gegn ákvæði sem var fellt brott úr lögum árið 2001. Þeim þætti var vísað frá dómi. Þá var hann ákærður fyrir að sigla bátnum óhaffærum, þar sem gilt haffærisskírteini var ekki um borð. V bar hjá lögreglu að hafa haft munnlegt leyfi starfsmanns Siglingastofnunar til að sigla skipinu. Var sú staðhæfing ekki könnuð nánar. Var V látinn njóta vafa um þetta og refsing hans látin falla niður.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Steingrími Þorvaldssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Skipstjórinn S var ákærður fyrir að hafa látið úr höfn á skipinu V „vanmönnuðu vegna þess að 2. stýrimaður og yfirvélstjóri höfðu eigi gild atvinnuréttindi“ og með því brotið nánar tilgreind ákvæði laga nr. 112/1984 um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum og laga nr. 113/1984 um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Talið var að refsiheimildir laganna væru nægilega skýrar og að S hefði unnið sér til refsingar fyrir þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin 100.000 krónur í sekt.