Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 5. gr. laga nr. 56/1972 — Lög um lögreglumenn
X var ákærður fyrir brot gegn 19. og 21. gr. lögreglulaga með því að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu og hindrað lögreglumenn að störfum er hann mótmælti stefnu stjórnvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd við Alþingishúsið 19. mars 2019. Hann neitaði sök. Í héraði var ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 19. gr. lögreglulaga en sýknaður af ákæru um brot gegn 21. gr. laganna. Að virtri framlagðri myndupptöku af atvikum taldi Landsréttur að því yrði hvorki slegið föstu að ákærði hefði óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá aðalinngangi Alþingis né að hann hefði, í kjölfar þess að lögregla handtók annan mótmælanda, hindrað lögreglumenn að störfum með því að stíga í veg fyrir þá er þeir voru að færa hinn handtekna í átt að lögreglubifreið. Var ákærði því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.
Sakfellt og sýknað að hluta af ákæru varðandi brot gegn lögreglulögum.