Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 18. gr. laga nr. 54/1978 — Byggingarlög
V og D keyptu einbýlishús af G og H. V og D töldu eignina haldna göllum sem lutu að því að gluggafrágangur og frágangur útveggjaklæðningar hússins hefði verið ófullnægjandi og rangur. Þau kröfðust greiðslu skaðabóta eða afsláttar vegna þessa og skaðabóta úr hendi G á grundvelli reglna skaðabótaréttar um sérfræðiábyrgð, en hann hefði verið byggingarstjóri við byggingu hússins. Í mati dómkvadds matsmanns kemur fram að frágangur bæði glugga og útveggjaklæðingar hússins hefði verið ófullnægjandi. Talið var að skemmdirnar hefðu verið þess eðlis að V og D hefðu ekki mátt gera sér grein fyrir þeim við skoðun á eigninni. Fyrir Hæstarétti höfnuðuð G og H því að matsgerð dómkvadds manns yrði lögð til grundvallar úrlausn málsins, einkum á þeim grunni að matsmaður hefði byggt niðurstöðu sína á skoðun eignarinnar eftir að viðgerðir hefðu farið fram. Ekki var fallist á málsástæður G og H þar sem þau höfðu ekki með yfirmati eða á annan hátt leitast við að fá niðurstöður matsmanns, sem héraðsdómur lagði til grundvallar, hnekkt, þar með talið að grundvöllur matsgerðar hefði ekki verið fullnægjandi. Í framburði húsasmiðsins K fyrir dómi kom fram að hann hefði verið fenginn til að skipta um undirstykki í gluggum hússins sumarið 2006 og hefðu þá komið í ljós fúaskemmdir. Talið var að V og D hefðu fyrst mátt verða gallanna vör um það leyti er framangreind viðgerð hefði átt sér stað. V og D sendu G og H tilkynningu sem uppfyllti fyrirmæli 1. mgr. 48. gr. laga nr. 40/200, innan sjö mánaða frá því að þau máttu verða gallanna vör. Var því ekki fallist á með G og H að krafa V og D hefði fallið niður fyrir tómlæti. Með þessum athugasemdum var niðurstaða héraðsdóms staðfest með vísan til forsenda. G og H voru því dæmd til að greiða V og D skaðabætur.
Vignir Arnarson og Dagný Magnúsdóttir gegn
Gunnari Benediktssyni og Hafdísi Erlu Magnúsdóttur
Seljendur fasteignar dæmdir til að greiða kaupendum skaðabætur vegna galla á eigninni