Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 54/1978 — Byggingarlög

Hæstiréttur birt 18. mars 1999

243/1998

Jóhanna Bogadóttir (Ástráður Haraldsson hrl) gegn Mosfellsbæ (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)

J fékk úthlutaðri lóð í sveitarfélaginu M. Nokkrum dögum fyrir úthlutunina samþykkti byggingarnefnd M staðsetningu spennistöðvar um 15 metrum utan við lóðina. Var spennistöðin reist stuttu síðar. J lét vinna fyrir sig teikningar og greiddi gatnagerðargjöld, áður en henni varð kunnugt um spennistöðina. Fór J fram á riftun lóðarleigusamnings vegna nálægðar spennistöðvarinnar og samþykkti M að taka aftur við lóðinni og endurgreiddi þau gjöld sem J hafði innt af hendi með verðbótum en án vaxta. Í málinu krafðist J skaðabóta af M vegna hönnunarkostnaðar og vaxta af gjöldunum sem voru endurgreidd. Var fallist á það að M hefði verið rétt að gera J fyrirfram ljóst að spennistöð yrði reist á opnu svæði nærri lóð hennar, en ekki var talið að vanræksla M á því hefði falið í sér vanefnd sem metin væri veruleg og veitt hefði J rétt til riftunar. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu M af kröfum J staðfest.