Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 9. gr. laga nr. 54/1962 — Lög um þjóðskrá og almannaskráningu

Landsréttur birt 20. desember 2019

187/2019

A (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn Þjóðskrá Íslands (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A krafðist þess að skráning Þ á A í þjóðskrá með lögheimili ótilgreint í Evrópu yrði ógilt og að viðurkennt yrði með dómi að lögheimili hennar yrði skráð sem nánar tilgreint heimilisfang þar sem hún hefði fasta búsetu. Í málinu deildu aðilar um hvernig skýra bæri 1. mgr. 8. gr. þágildandi laga nr. 21/1990 um lögheimili. Skráning lögheimilis A sem ótilgreint í Evrópu byggðist á 1. málslið 1. mgr. 8. gr. laga nr. 21/1990, en samkvæmt ákvæðinu átti barn, 17 ára eða yngra, sama lögheimili og foreldrar þess ef þeir byggju saman. Óumdeilt var að A, sem var yngri en 17 ára, bjó hjá báðum foreldrum sínum. Af hálfu A var því hins vegar haldið fram að þar sem A hefði fæðst á Íslandi og búið hérlendis alla ævi ætti lögheimili hennar ekki að ráðast af lögheimili foreldra hennar, þar sem A hefði aldrei búið þar. Byggði A á því að skrá hefði átt lögheimili hennar í þjóðskrá á þeim stað þar sem hún hefði fasta búsetu, sbr. niðurlagsákvæði 1. mgr. 8. gr. og 1. gr. laga nr. 21/1990. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 8. gr. laga nr. 21/1990 væri sérregla um lögheimili barna sem gengi framar almennri reglu 1. gr. laganna. Með hliðsjón af skýru orðalagi 1. málsliðar 1. mgr. 8. gr. laganna var ekki fallist á að skýra niðurlag 1. mgr. 8. gr. með þeim hætti að barn sem fætt væri hér á landi og byggi í raun með báðum foreldrum sínum, teldist búa hjá hvorugu foreldra sinna í skilningi ákvæðisins af þeirri ástæðu einni að þeir hefðu lögheimili í öðru landi og skorti heimild til lögheimilisskráningar hér. Í dómi Landsréttar var fallist á með A að ákvörðun um skráningu Þ á A í þjóðskrá hafi falið í sér stjórnvaldsákvörðun. Talið var að sú ákvörðun hefði verið í samræmi við þau lög sem um skráninguna giltu og að efni hennar og málsmeðferð hefði ekki verið haldið neinum ágöllum sem varðað gætu ógildingu hennar. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Þ því staðfest.