Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 59. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 1. júní 2017

636/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því hafa ekið bifreið í hálku og krapi án þess að gæta nægilegrar aðgæslu, of hratt miðað við aðstæður í afturdrifi og á slitnum hjólbörðum sem hvoru tveggja hafði slæm áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar. Missti Þ stjórn á bifreiðinni og fór hún yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún lenti á tveimur bifreiðum og slösuðust ökumaður og farþegi í þeim. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Var hún auk þess svipt ökurétti í þrjá mánuði. Þá var S sakfelldur fyrir brot gegn 59. gr. laga nr. 50/1987 fyrir að hafa sem skráður eigandi bifreiðarinnar ekki gætt þess að bifreiðin væri í lögmæltu ástandi. Var S gert að greiða 20.000 króna sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. desember 2015

S-428/2015

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir umferðar- og hegningarlagabrot á Hellisheiði. Var refsing ákveðin í 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þ var svipt ökurétti. Í málinu var S einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til sektargreiðslu.

Hæstiréttur birt 26. febrúar 2015

440/2014

A (Jóhannes Albert Kristbjörnsson hdl) gegn B, Tryggingamiðstöðinni hf (Guðmundur Pétursson hrl) og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson hrl)

A höfðaði mál á hendur B, T hf. og S hf. til viðurkenningar á bótaskyldu þeirra vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi í júlí 2008. Laut ágreiningur aðila að því hvort að A hefði umrætt sinn sýnt af sér stórfellt gáleysi sem leiða ætti til þess að hann skyldi bera tjón sitt sjálfur að öllu leyti eða hluta, en einkum var deilt um hraða bifreiðar hans. Í dómi héraðsdóms kom fram að ekki yrði byggt á niðurstöðum rannsóknar og útreikninga sérfræðinga um ökuhraða A, sem kvæðu á um að hann hefði verið á að minnsta kosti 67 km hraða á klukkustund. Þess í stað yrði að miða við framburð A í sakamáli gegn honum vegna umrætt umferðarslys, um afstöðu bifreiðar hans og B þegar óhappið varð, en sá framburður leiddi til þess að A hefði ekið ívið hraðar en B, sem sakfelldur hefði verið fyrir að aka á 86 km hraða á klukkustund. Hámarkshraði á þeim stað sem atvik gerðust væri 50 km á klukkustund. Yrði því að telja að meginorsök þess að A missti stjórn á bifreiðinni væri hraðaakstur hans sjálfs og aðgæsluleysi við aðstæður á vettvangi. Var A gert að bera tjón sitt sjálfur að öllu leyti. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af atvikum málsins og skýrslur A og B fyrir dómi í sakamálunum tveimur yrði hvorki dregin sú eindregna ályktun að bifreiðirnar hefðu verið samsíða um nánar tilgreinda fjarlægð áður en slysið varð, né að þær hefðu verið á sama hraða við slysið. Væri því nægilega leitt í ljós að bifreið A hefði að minnsta kosti verið ekið á 67 km hraða á klukkustund er slysið varð. Þá yrði talið að aksturslag B hefði verið meginorsök þess að A missti stjórn á bifreiðinni og varð fyrir líkamstjóni. Á hinn bóginn yrði að líta til þess að bifreið A hefði ekki verið í notkunarhæfu ástandi, á of miklu hraða á fjölfarinni umferðargötu í þéttbýli, á blautum vegi um nótt og í rigningu og í námunda við gatnamót og gangbraut. Hefði hann því sýnt af sér stórfellt gáleysi við aksturinn. Að öllu framangreindu virtu var talið að B og T hf. væru bótaskyld að 2/3 hlutum vegna líkamstjóns A, en að hann skyldi bera sjálfur 1/3 hluta tjóns síns.

Hæstiréttur birt 16. september 1999

172/1999

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Eyvindi Jóhannssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)
Lykilorð: Bifreið. Skráning.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var ákærður fyrir brot gegn 2. mgr. 27. gr. reglugerðar nr. 78/1997 um skráningu ökutækja með því að hafa látið festa spjald fyrir ofan skráningarmerki bifreiðar sem hann hafði umráð yfir. Spjaldið var ekki talið gert úr garði eins og skráningarmerki bifreiðar og nokkurt bil var á milli spjaldsins og merkisins. Ekki var talin slík hætta á að yfirvöld eða almenningur gæti villst á spjaldinu og skráningarmerki bifreiðarinnar að efni væru til að sakfella E. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu E staðfest.