Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 6. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)
gegn
Guðmundi Sigurðssyni (
Páll Arnór Pálsson hrl)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ekki var talið að rökstuddur grunur beindist að X um að hún hafi gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing væri lögð við, sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.
Viðurkennd var óskipt bótaskylda A og V hf. vegna umferðarslyss er leiddi til andláts föður E. Var E látinn bera helming tjóns síns sjálfur þar sem faðir hans hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn, er hann ók bifhjóli sínu á ofsahraða í þéttbýli og var þannig meðvaldur að slysinu.
Stefnendur sýknaðir af kröfu um bætur vegna missis framfæranda.
Deilt var um sakarskiptingu vegna umferðarslyss á Skagaströnd, en þar rákust saman bifreið og Motocross bifhjól. Ökumaður bifhjólsins slasaðist mikið. Báðir taldir bera ábyrgð á slysinu og sök skipt til helminga.
Deilt var um sakarskiptingu vegna árekstrar bifreiðanna Y og P. Á grundvelli þess sem fyrir lá í málinu, og eins og sönnunarstöðu var háttað, varð að miða við að bifreiðin P hefði verið komin það nærri stöðvunarlínu við umrædd gatnamót að ökumanni hennar hafi ekki borið að stöðva bifreiðina er gult ljós kviknaði á götuvita, heldur hafi hún mátt halda áfram för í samræmi við síðari hluta 5. mgr. 34. gr. reglugerðar nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra. Ökumanni Y hafi því eins og hér stóð á, borið að veita P forgang í samræmi við 6. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1987.