Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 107. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 5. apríl 2019

230/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Magnúsi Ólafi Garðarssyni (Haukur Örn Birgisson lögmaður) (Helgi Birgisson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 50/1987 með því að hafa tiltekinn dag ekið bifreið sinni austur Reykjanesbraut yfir leyfðum hámarkshraða. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 168. gr., 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilteknum ákvæðum umferðarlaga með því að hafa ekið sömu bifreið of hratt í myrkri, við erfið veður- og akstursskilyrði, langt yfir leyfilegum hámarkshraða vestur Reykjanesbraut, og tekið fram úr bifreiðum án þess að sinna aðgæsluskyldu við framúrakstur, með þeim afleiðingum að hann ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið. Hafnaði síðarnefnda bifreiðin utan vegar og varð fyrir skemmdum auk þess sem ökumaður hennar, A, varð fyrir líkamstjóni. Í dómi Landsréttar kom fram hvað varðaði síðara brot M að þegar sönnunargögn málsins og framburður vitna væru virt heildstætt og í ljósi þess að M hefði viðurkennt að hraði bifreiðarinnar hefði ekki verið í samræmi við aðstæður þætti komin fram lögfull sönnun um að M hefði viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greindi við afar slæm veður- og akstursskilyrði. Þótti sannað að um stórhættulegan glæfraakstur hefði verið að ræða. Þegar litið væri heildstætt á vítaverðan akstur M og fjölda annarra alvarlegra hraðakstursbrota hans þótti ótvírætt að háttsemi hans fullnægði skilyrðum 1. mgr. 107. gr. a umferðarlaga til þess að heimilt væri að gera bifreið hans upptæka til ríkissjóðs. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. M var sviptur ökurétti í 12 mánuði frá uppsögu héraðsdóms og gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. febrúar 2018

S-50/2017

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari) gegn Magnús Ólafur Garðarssyni (Haukur Örn Birgisson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar- og hegningarlögum og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, og sviptur ökurétti í 12 mánuði. Þá var ákærði dæmdur til að greiða kröfuhafa miskabætur. Kröfu ákæruvaldsins um upptöku bifreiðar ákærða var hafnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. desember 2012

S-942/2012

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson ftr) gegn Piotr Radoslaw Lapus
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 2ja mánaða fangelsi, sviptur ökurétti ævilangt fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Þá var ákærði dæmdur til að sæta upptöku bifreiðarinnar.