Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Vesturlands birt 6. júní 2006

S-309/2005

Ákæruvaldið (Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi) gegn Friðgeiri Stefánssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem neitaði sök, sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og án þess að hafa öðlast ökurétt. Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og hann jafnframt sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Vesturlands birt 31. maí 2006

S-301/2005

Ákæruvaldið (Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi) gegn Jórunni Sigfúsdóttur (Ingi Tryggvason hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða, sem neitaði sök að hluta, var sakfelld fyrir að hafa ekið bifreið í tvígang undir áhrifum áfengis. Ákærða dæmd til greiðslu sektar og hún jafnframt svipt ökurétti.

Hæstiréttur birt 3. júní 1999

133/1999

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Völundi Helga Þorbjörnssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði krefst aðallega sýknu, en til vara að refsing verði milduð. Þá er krafist málsvarnarlauna í héraði ef sýknað verður, en fyrir Hæstarétti hver sem úrslit málsins verða. Í greinargerð ákærða fyrir Hæstarétti var meðal annars teflt fram þeirri málsvörn, að ekkert liggi fyrir um að í töflunum, sem greinir í II. kafla ákæru, sé karlkynshormón með svonefndri anabóliskri verkun. Af því tilefni hlutaðist ákæruvaldið til um að töflur, sem nefndur kafli ákæru tekur til, yrðu sérstaklega rannsakaðar hjá lyfjafræðistofnun Háskóla Íslands. Voru rannsökuð þrjú sýni, þar sem 30 töflur voru í hverju. Í skýrslu stofnunarinnar 21. maí 1999, sem lögð hefur verið fyrir Hæstarétt, kemur fram að í töflunum sé metandróstenólon (methandienone), 5 mg í hverri töflu. Kemur þar jafnframt fram sú skýring, að metandróstenólon sé testósterónlíkt lyf með mikla bolsteraverkun, en hið síðastnefnda sé aðal karlhormónið í líkamanum. Þessi niðurstaða er í samræmi við skýringu ákærða við rannsókn málsins fyrir lögreglu þess efnis að um sé að ræða stera, sem hann kvaðst hafa ætlað til eigin nota. Með vísan til forsendna héraðsdóms verður staðfest sakfelling ákærða fyrir öll atriði ákærunnar. Við ákvörðun refsingar vegna brota, sem getið er í III. kafla hennar, verður litið til 5. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 3. gr. laga nr. 57/1997. Að þessu gættu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin í héraðsdómi. Verður jafnframt staðfest niðurstaða héraðsdóms um eignaupptöku, sviptingu ökuréttar og sakarkostnað. Þá skal ákærði greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, svo sem greinir í dómsorði.