Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á lögreglulögum, nr. 90 13. júní 1996. nr. 49/2000
D sótti um að fá að þreyta inntökupróf í Lögregluskóla ríkisins vorið 2005, en var hafnað þar sem hann fullnægði ekki almennu skilyrði um hámarksaldur. Með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins 13. febrúar 2007 var komist að þeirri niðurstöðu að valnefnd hefði ekki gætt jafnræðis er hún með ólögmætum hætti hefði gert upp á milli D og annars umsækjanda við veitingu undanþágu frá þessu skilyrði. Var talið að Í bæri af þeim sökum bótaábyrgð á tjóni D sem af því kynni að hafa leitt, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Skilyrðum um hámarksaldur var breytt og átti D þess því kost að sækja um skólavist ári síðar en gerði það ekki. Var því talið að ólögmæt synjun valnefndar á umsókn hans árið 2005 hefði hvað sem öðru liði ekki geta orðið þess valdandi að það drægist meira en eitt ár að hann gæti hafið störf innan lögreglunnar. Þegar litið væri til þess hversu lítill munur væri á mánaðartekjum í því starfi sem D gegndi og þeim störfum sem hann hugsanlega hefði átt kost á innan lögreglunnar á því ári sem um ræddi, sem og þess að engin gögn væru í málinu um hvaða vinnuframlag lægi að baki tekjum D var talið að honum hefði ekki tekist að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir fjártjóni vegna synjunar valnefndar. Skilyrðum 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 til greiðslu miskabóta var hins vegar talið fullnægt og voru þær hæfilega ákveðnar 300.000 krónur.
Ó hóf nám á fyrri önn í Lögregluskóla ríkisins 1. september 1997. Samkvæmt þágildandi ákvæði 4. mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 5. gr. reglugerðar nr. 490/1997 skyldu nemar í starfsþjálfun og þeir sem stunduðu nám á síðari önn skólans teljast til lögreglumanna og skyldi starf þeirra vera launað. Í desember 1997 var Ó ráðinn tímabundið í starfsnám til lögreglunnar og skyldi um laun hans fara eftir gildandi kjarasamningi, sem var frá 30. ágúst 1997. Í 1. gr. þessa kjarasamnings var kveðið á um að áður gildandi samningur ætti að framlengjast væri ekki önnur skipan á gerð. Þar sem það var ekki gert gilti ákvæði 10.1.1 fyrra samnings áfram um laun lögreglunema, en þar var svo fyrir mælt að lögreglumenn sem stunduðu nám í Lögregluskóla ríkisins ættu auk fastra launa að njóta vaktaálags, ákveðins ferðakostnaðar og fá greiddan hæfilegan dvalarkostnað. Krafa Ó um greiðslur var í samræmi við þetta og ekki var tölulegur ágreiningur í málinu. Voru kröfur Ó því teknar til greina.