Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 4. gr. laga nr. 47/2010 — Lög um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn

Landsréttur birt 14. febrúar 2020

289/2019

A (Sigmundur Hannesson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í og krafðist ógildingar úrskurðar úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur og að Í yrði gert að greiða henni dráttarvexti af sanngirnisbótum sem henni höfðu verið greiddar. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að bætur hefðu verið greiddar á lögákveðnum gjalddaga og ætti A ekki rétt á dráttarvöxtum af þeim samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Var Í því sýknað af kröfum A í málinu.

Landsréttur birt 12. október 2018

157/2018

Íslenska ríkið (Soffía Jónsdóttir lögmaður) gegn A (Sigmundur Hannesson lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í til að fá felldan úr gildi úrskurð Úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur, auk þess sem hún gerði kröfu um dráttarvexti á slíkar bætur og málskostnað. Í úrskurði sínum vísaði Landsréttur til þess að kröfur A fyrir héraðsdómi hefðu verið settar fram á þann hátt að ekki hefði verið krafist greiðslu á tilteknum höfuðstól auk dráttarvaxta, heldur hefði einungis verið sett fram krafa um greiðslu dráttarvaxta af höfuðstólnum, eins og hann hefði verið á hverjum tíma, að frádregnum innborgunum. Slík kröfugerð hefði óhjákvæmilega í för með sér að A fengi einungis lítinn hluta dráttarvaxtanna greiddan ef dómur félli í samræmi við dómkröfur hennar. Dómkröfur A væru þannig ekki til þess fallnar að skila henni þeim árangri sem málatilbúnaður hennar lyti að. Því væri slíkt ósamræmi milli kröfugerðar hennar og málsástæðna að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu í heild frá héraðsdómi með vísan til e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Þá var fundið að því að í héraðsdómi hefði ekki verið tekin afstaða til krafna aðila um málskostnað, gjafsóknarþóknun lögmanns A var ekki ákveðin og ekki var tilgreint í dómsorði við hvaða lagaákvæði dæmdir dráttarvextir styddust.