Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 7. gr. laga nr. 47/2003 — Lög um eftirlit með skipum

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. september 2013

E-2300/2012

Hálfdán Daði Hinriksson (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á því að ákvörðun Siglingastofnunar Íslands um að svipta hann starfsleyfi til plastbátasmíði hefði verið ólögmæt. Þá krafðist hann skaðabóta og miskabóta úr hendi stefnda, íslenska ríkisins. Viðurkenningarkröfu stefnanda var vísað frá dómi en stefndi að öðru leyti sýknaður af kröfu hans.

Hæstiréttur birt 13. desember 2012

260/2012

M.J. útgerð ehf (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Hraunútgerðinni ehf (Jónas Þór Jónasson hrl)

M ehf., sem keypt hafði vélbát af H ehf., höfðaði mál gegn H ehf. vegna leynds galla sem hann taldi vera á rafkerfi bátsins og krafðist aðallega viðurkenningar á riftun kaupsamningsins, til vara skaðabóta, en að því frágengnu afsláttar. M ehf. hafði aflað matsgerðar dómkvadds manns, þar sem komist var að niðurstöðu um að verulegur galli væri á rafkerfi bátsins. Héraðsdómur, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmönnum, leit framhjá matsgerðinni við úrlausn málsins, vegna annmarka við matið, og komst að niðurstöðu um að M ehf. hefði ekki tekist sönnun um að vélbáturinn væri haldinn leyndum galla. Eftir uppkvaðningu héraðsdóms óskaði M ehf. endurdómkvaðningar matsmanns. Hin nýja matsgerð var sama efnis og sú hin fyrri. Hæstiréttur vísaði til þess að matsgerðin væri sönnunargagn um grundvallaratriði málsins, málatilbúnaður M ehf. hefði fyrst og fremst verið reistur á fyrri matsgerðinni og að framhald málsins hefði markast af henni. Vegna annmarka á matsgerðinni hefði hún ekki komið til efnislegrar umfjöllunar héraðsdóms. Taldi Hæstiréttur að málatilbúnaður M hef. farið svo verulegu úrskeiðis að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu frá héraðsdómi.