Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 20. gr. laga nr. 47/1971 — Lög um náttúruvernd

Hæstiréttur birt 15. október 2009

553/2008

Man ehf (Helgi Birgisson hrl) gegn Sigurði Hannesi Oddssyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)

S keypti með afsali í júlí 1979 spildu úr landi jarðarinnar V af H, þáverandi eiganda jarðarinnar. S kvaðst ætíð hafa talið sig eiga veiðirétt í A á grundvelli eignarhalds að umræddri landspildu við vatnið og veitt sem slíkur í því. Höfðaði hann mál og krafðist þess að viðurkenndur yrði veiðiréttur hans í vatninu. M, núverandi eigandi jarðarinnar V, mótmælti kröfu S og bar því við að veiðiréttur sá sem frá fornu hefði tilheyrt V hefði aldrei verið frá henni skilinn. Þótt S hefði eignast spildu úr jörðinni fyrir sumarhús hefði hann ekki eignast við það hlutdeild í veiðirétti jarðarinnar. Í afsalinu til S var ekki kveðið á um það hvort réttur til veiði ætti að fylgja með í kaupunum. Þá varð ekki beinlínis ráðið af texta þess hvernig mörk landspildu S gagnvart vatninu væru, þótt orðalagið benti fremur til þess að spildan hefði átt að ná alla leið að A. Það væri forn regla í íslenskum rétti að hver maður ætti veiði fyrir landi sínu og hefði samsvarandi regla verið lögfest í lögum um lax- og silungsveiði. Þar sem réttur S til veiða í A hefði ekki verið sérstaklega undanþeginn þegar umræddri spildu var afsalað til hans yrði að telja að sá réttur hefði fylgt með í kaupunum. Var krafa S um viðurkenningu á veiðirétti í vatninu A tekin til greina.