Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um Háskólann á Akureyri nr. 40/1999

Hæstiréttur birt 3. mars 2011

472/2010

Háskólinn á Akureyri (Óskar Thorarensen hrl) gegn Stefáni G. Jónssyni (Gísli Guðni Hall hrl)

S starfaði sem dósent hjá H þegar honum var sagt upp störfum í maí 2006 vegna skipulagsbreytinga. Breytingarnar fólu m.a. í sér að dregið var úr námsframboði í kennaradeild H sem S starfaði við. S krafði H um bætur vegna uppsagnarinnar. Þar sem fyrir lá að kennaradeild og háskólaráð H höfðu komist að þeirri niðurstöðu að draga ætti úr raungreinakennslu við deildina féllst Hæstiréttur ekki á með S að rektor H hefði með uppsögninni farið gegn ákvörðunum deildarráðs eða háskólaráðs. Ekki var talið orka tvímælis að ráðning S hefði verið bundin við kennaradeild og að byggt hefði verið á því í starfsemi H að einstakir kennarar væru ráðnir til ákveðinna deilda H, störfuðu við þær og lytu í ýmsum atriðum boðvaldi deildarforseta eða deildarfundar. Við samanburð á kennurum þeirra greina sem S kenndi hefði rektor H því ekki með réttu lagi getað litið út fyrir raðir þeirra sem störfuðu við kennaradeild H. Ekki voru efni til að hnekkja mati H að kennari í þessum greinum, sem einn sat eftir í stöðu við kennaradeild, stæði framar í samanburði við S. Var H því sýknaður af kröfu S.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. maí 2010

E-580/2007

Stefán Jónsson (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Háskólanum á Akureyri (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnandi starfaði sem dósent í stærðfræði og eðlisfræði við Háskólann á Akureyri og var kennaradeild skólans síðasti starfsvettvangur hans. Stefnanda var sagt upp störfum og kvað Háskólinn uppsögnina komna til af því, að eftir skipulagsbreytingar væru ekki lengur næg verkefni fyrir stefnanda í kennaradeild skólans. Krafðist stefnandi bóta fyrir ólögmæta uppsögn. Talið var að Háskólinn hefði ekki staðið réttilega að uppsögninni, en stefnandi hefði aðeins verið borinn saman við samkennara innan kennaradeildar en ekki við aðra kennara, í sömu fræðigreinum, í skólanum í heild. Taldist Háskólinn því hafa brotið rannsóknarreglu stjórnsýslulaga, uppsögnin ólögmæt og skólinn dæmdur til að greiða stefnanda 3 milljónir króna í skaðabætur.