Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 5. gr. laga nr. 35/2010 — Lög um lögskráningu sjómanna
A og B höfðuðu mál gegn C hf. og T hf. til heimtu miskabóta vegna andláts sonar þeirra D. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að leggja yrði til grundvallar að D hafði drukknað eftir að hafa fallið fyrir borð af netabátnum E þegar samkvæmt gögnum málsins slokknaði skyndilega á síma hans líkt og hann hefði lent í vatni. Engin vitni hafi verið af falli D í sjóinn og var því með öllu óvíst hvað olli hinum hryggilega atburði. A og B byggðu málsókn sína á 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, en sönnunarbyrðina fyrir því að slys það sem olli dauða D væri að rekja til saknæmrar háttsemi, sem C hf. bæri ábyrgð á, hvíldi á A og B. Í dómi Landsréttar var rakið hvernig sú sönnun hefði ekki tekist og var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna C hf. og T af kröfum A og B.
Stefnendur, foreldrar ungs manns, kröfðust miskabóta á hendur stefndu, útgerðarfyrirtæki og tryggingafélagi þess, í kjölfar þess að sonur þeirra hafði fallið útbyrðis af fiskveiðibáti þar sem hann var háseti og látist í sjó, sbr. 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Að mati dómsins þótti með öllu ósannað með hvaða hætti umrætt óhapp átti sér stað, auk þess sem ekki þótti heldur vera sýnt fram á að ætlaðir annmarkar í framgöngu skipstjóra og útgerðar í tengslum við málið væru þess eðlis að ætti eftir sem áður að leiða til þess að bótaskylda yrði felld á stefndu.