Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum (fjárhagsleg endurskipulagning og slit). nr. 32/2011
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli E ehf. var vísað frá dómi. Var frávísunin byggð á því að E ehf. hefði ekki sýnt nægilega fram á að félagið hefði orðið fyrir tjóni í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 og að skilyrði fyrir höfðun máls til viðurkenningar á bótaskyldu væru þar af leiðandi ekki uppfyllt. Í úrskurði Landsréttar kom fram að talið væri að E ehf. hafi leitt að því nægar líkur að hann hafi orðið fyrir fjártjóni yrði fallist á málsástæður hans fyrir bótaskyldu V, sbr. tilvitnað lagaákvæði. Var þar með talið að uppfyllt væru skilyrði fyrir því að taka mætti viðurkenningarkröfu E ehf. til efnislegrar umfjöllunar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Málinu var vísað frá dómi, þar sem stefnandi þótti ekki hafa leitt nægilega í ljós að hann hafi orðið fyrir tjóni og hafði því ekki lögvarða hagsmuni af því að fá dóm fyrir viðurkennignarkröfu sinni um skaðabótaskyldu stefnda. Var stefnandi dæmdur til að greiða stefnda málskostnað.
Ákærði Andri Þór Eyjólfsson krefst sýknu af I. hluta ákæru 18. október 2011 og að sér verði gerð svo væg refsing sem lög leyfi vegna brots í II. hluta ákærunnar. Til vara krefst hann mildunar á refsingu og að hún verði bundin skilorði. Ákærðu Ágúst Jón og Bjarni Sigurgrímsson krefjast þess að refsing þeirra verði milduð og hún skilorðsbundin. Ákærði Hafþór Logi Hlynsson krefst aðallega sýknu, en til vara að refsing hans verði milduð. Svo sem greinir í hinum áfrýjaða dómi sendi lögregla sýni af haldlögðum fíkniefnum til rannsóknar hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði með verkbeiðnum 12. febrúar og 29. apríl 2010. Vegna fyrri verkbeiðni var tekin saman matsgerð 1. mars sama ár og var hún meðal gagna málsins í héraði. Fyrir Hæstarétt hefur verið lögð fram skýrsla rannsóknarstofunnar 7. júní 2010, sem mun hafa verið tekin saman vegna síðari verkbeiðni, en um var að ræða samanburð á kókaínsýnum með tilliti til uppruna þeirra. Samkvæmt skýrslunni reyndist styrkur kókaíns í þessum sýnum sá sami og greinir í fyrri matsgerð rannsóknarstofunnar. Með vísan til forsendna héraðsdóms verður staðfest niðurstaða hans um sakfellingu ákærða Ágústs Jóns og Bjarna. Í hinum áfrýjaða dómi er rakið að ákærði Andri Þór og vitnið A hafi undir rannsókn málsins hjá lögreglu greint frá því að ákærði Hafþór Logi hafi beðið A um að kaupa farseðil fyrir ákærða Bjarna með flugi Iceland-Express 11. febrúar 2010 til landsins frá Kaupmannahöfn. Var annars vegar um að ræða skýrslu vitnisins hjá lögreglu 25. febrúar 2010 og hins vegar skýrslu ákærða Andra Þórs fyrir dómi 5. mars sama ár. Er vísað til þess í héraðsdómi að vitnið og ákærði hafi á þessum tíma setið í gæsluvarðhaldi og ekki vitað hvor um framburð hins. Var einnig talinn ótrúverðugur framburður þeirra við aðalmeðferð málsins um að þeir hefðu ranglega í fyrri skýrslum sagt ákærða Hafþór Loga hafa beðið A að kaupa farseðilinn. Í umræddri skýrslu ákærða 5. mars 2010 vísar hann til þess að atvik að þessu leyti hafi verið með sama móti og „hann A sagði.“ Af þessu má ráða að ákærða hafi fyrir skýrslugjöfina verið greint frá framburði A. Þegar á hinn bóginn eru virt önnur atriði, sem rakin eru í héraðsdómi, um sönnun sakargifta á hendur ákærða Hafþóri Loga getur þetta eitt og sér ekki haggað sönnunarmati hins áfrýjaða dóms og verður hann staðfestur um sakfellingu ákærða. Í héraðsdómi er vísað til þess að fram komi í gögnum málsins að fatnaður ákærða Andra Þórs hafi gefið sterka svörun við kókaíni við skoðun tollvarða, er hann kom til landsins frá Kaupmannahöfn 9. febrúar 2010. Þegar ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu 27. febrúar 2010 var hann beðinn að útskýra þetta eftir að honum hafði verið kynnt að lögreglu hefðu borist upplýsingar um þessi afskipti af honum við tollskoðun. Ákærði neitaði að gefa skýringar á þessu en vísað í tollskýrslu og kvaðst hafa greint tollinum frá þessu á þeim tíma. Þó gerði ákærði þá athugasemd við lok skýrslutökunnar að sýni sem tollgæslan tók hafi ekki verið af fötum ákærða heldur höndum hans. Ákærði staðfesti því umrædd afskipti af sér, sem kallað hafi á skýringar af hans hálfu, og skiptir þá ekki máli þótt ekki njóti við frekari gagna í málinu um þau. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur um sakfellingu ákærða Andra. Brot ákærðu samkvæmt I. hluta ákæru 18. október 2011 lutu að innflutningi á samtals 877,81 g af kókaíni, sem samkvæmt efnagreiningu Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði reyndist vera 85-86% kókaínklóríð. Auk þess hefur ákærði Andri Þór verið sakfelldur fyrir vörslur á 3,43 g af kannabisefnum samkvæmt II. hluta ákærunnar og ákærði Ágúst Jón fyrir umferðarlagabrot samkvæmt ákæru 29. nóvember 2011. Við ákvörðun refsingar er þess að gæta að þáttur ákærðu í skipulagningu og framkvæmd sameiginlega brots þeirra er nokkuð misjafn eins og rakið er í hinum áfrýjaða dómi. Að því virtu og með vísan til þess sem segir í héraðsdómi um ákvörðun refsingar skal ákærði Hafþór Logi sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði, ákærði Andri Þór í 3 ár, svo sem ákveðið var í héraðsdómi, ákærði Ágúst Jón í 18 mánuði og ákærði Bjarni í 15 mánuði. Ekki eru efni til að binda refsinguna skilorði en til frádráttar henni kemur gæsluvarðhald, sem ákærðu sættu vegna málsins, eins og greinir í dómsorði. Ákærði Ágúst Jón var með dómi 15. júní 2007 sviptur ökurétti í 12 mánuði vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með broti því sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir samkvæmt ákæru 29. nóvember 2011 hefur hann ítrekað gerst sekur um slíkt brot. Að því gættu verður staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um ökuréttarsviptingu ákærða. Ákvæði héraðsdóms um upptöku og sakarkostnað eru staðfest. Ákærðu Andra Þór og Hafþóri Loga verður gert að greiða málsvarnarlaun verjenda sinna fyrir Hæstarétti með virðisaukaskatti, eins og í dómsorði segir. Einnig verður þeim gert að greiða óskipt helming annars áfrýjunarkostnaðar. Málsvarnarlaun ákærðu Ágústs Jóns og Bjarna fyrir Hæstarétti, sem ákveðin eru með virðisaukaskatti, skulu greiðast úr ríkissjóði.
Fjórir menn voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnabrot, innflutning á 877,81 g af kókaíni. B var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, Á í 2 ára fangelsi (skilorðsdómur dæmdur upp), A í 3 ára fangelsi (reynslulausn dæmd upp) og H var dæmdur í 2 ára fangelsi.