Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 19. gr. laga nr. 30/2003 — Lög um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var að viðurkenna kröfu sem VBS hf. hafði lýst við slit LBI ehf. VBS hf. krafðist ómerkingar úrskurðar héraðsdóms vegna þess að ekki hefði verið tekin afstaða til vara- og þrautavarakröfu. Þá var á því byggt að málsástæða LBI ehf. er laut að aðildarskorti VBS hf. hafi verið of seint fram komin. Landsréttur taldi héraðsdóm hafa í úrskurði sínum tekið afstöðu til allra krafna VBS ehf. Ennfremur var ekki fallist á að málsástæða LBI ehf. um aðildarskort hefði verið of seint fram komin. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.
Hafnað var kröfu um að krafa að fjárhæð 305.950.798 kr. yrði viðurkennd við slit varnaraðila. Sóknaraðili var hvorki talinn hafa sýnt fram á með hvaða hætti hann væri kominn að kröfunni né hvaða tjón yrði rakið til atvika sem málsástæður hans í málinu byggðust á.
H ses. átti hlutdeildarskírteini í fjárfestingarsjóði sem L hf. annaðist rekstur á en LÍ hf. hafði vörslur og umsjón með eignum sjóðsins. Að morgni 6. október 2008 fór H ses. þess á leit með tölvupósti til LÍ hf. að hlutdeildarskírteini hans yrðu seld og andvirði þeirra lagt inn á innlánsreikning. Síðar sama dag sendi starfsmaður LÍ hf., með tölvubréfi, staðfestingu á því að beiðni H ses. hefði verið skráð og fylgdi tölvubréfinu bráðabirgðakvittun vegna innlausnarinnar. L hf. tók þá ákvörðun að morgni 6. október að fresta ótímabundið innlausn hlutdeildarskírteina þeim sjóði sem H ses. hafði fjárfest í og var ákvörðunin í kjölfarið send Fjármálaeftirlitinu og kynnt opinberlega. Hæstiréttur vísaði til þess að þegar ákvörðun L hf. hefði verið tekin hefði ekki farið fram innlausn á hlutdeildarskírteinum H ses. samkvæmt beiðni þar um. Væri H ses. því bundinn af ákvörðuninni. Þá hefði innlausn ekki farið fram við það eitt að H ses. hefði fengið bráðabirgðakvittun vegna fyrirhugaðrar innlausnar þegar viðskipti hæfust aftur með skírteini í sjóðnum. Samkvæmt þessu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu L hf.
Hafnað skaðabótakröfu Reykjavíkurborgar við slitameðferð Glitnis banka hf.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu sem nam mismuni á innlausnarvirði hlutdeildarskírteina stefnanda í fjárfestingarsjóði hjá stefnda og þeirri fjárhæð sem stefnandi fékk greidda við slit sjóðsins.