Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 8. gr. laga nr. 28/2001 — Lög um rafrænar undirskriftir
Stefnandi hélt því fram að stefndu hefðu gerst brotleg við samkeppnisbann sem þau hefðu undirgengist við sölu til stefnanda á tilteknum eignum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Að mati dómsins braut það ekki gegn banninu að bjóða upp á hlaðvarp á vefsíðu Fréttablaðsins og taldi dómurinn stefndu ekki hafa borið ábyrgð á grundvelli eignarhalds á því að sjónvarpsefni var tengt við vefsíðuna eftir að þau seldu rekstur blaðsins. Þá hefði stefnandi ekki leitt líkum að því að stefndi 365 hf. hefði á grundvelli tiltekinna samningsákvæða um sölu blaðsins gerst brotlegur við samkeppnisákvæði það sem byggt var á í málinu og voru önnur stefndu ekki gerð ábyrg á grundvelli samningsákvæða um sölu blaðsins þar sem þau áttu ekki aðild að þeim samningi. Voru stefndu því sýknuð af öllum kröfum stefnanda í málinu.
Ákæruvaldið (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bergi Arnóri Bjarnasyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir ofsaakstur og fleiri brot.
G, sem starfaði hjá R ehf., krafði fyrirtækið um skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir við vinnu sína. Hélt G því fram að slysið hefði mátt rekja til ófullnægjandi vinnuaðstöðu auk þess sem verkstjórn hefði verið ófullnægjandi. Tekið var fram að öryggisútbúnaður sem hefði getað komið í veg fyrir slysið hefði ekki verið í notkun en ríka skyldu yrði á leggja á vinnuveitanda að hafa slíkan búnað til reiðu til að tryggja öryggi starfsmanna sinna. Þar sem það var ekki gert og látið viðgangast hvernig G bar sig að við verkið bar R ehf. skaðabótaábyrgð á tjóni G. Í ljósi þess að umrætt verk var mjög einfalt, G hafði mikla reynslu í starfi og hafði margsinnis unnið það mátti honum vera ljós hættan. Var hann því látinn bera helming tjónsins.