Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Samkeppnisbann
Stefnandi hélt því fram að stefndu hefðu gerst brotleg við samkeppnisbann sem þau hefðu undirgengist við sölu til stefnanda á tilteknum eignum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Að mati dómsins braut það ekki gegn banninu að bjóða upp á hlaðvarp á vefsíðu Fréttablaðsins og taldi dómurinn stefndu ekki hafa borið ábyrgð á grundvelli eignarhalds á því að sjónvarpsefni var tengt við vefsíðuna eftir að þau seldu rekstur blaðsins. Þá hefði stefnandi ekki leitt líkum að því að stefndi 365 hf. hefði á grundvelli tiltekinna samningsákvæða um sölu blaðsins gerst brotlegur við samkeppnisákvæði það sem byggt var á í málinu og voru önnur stefndu ekki gerð ábyrg á grundvelli samningsákvæða um sölu blaðsins þar sem þau áttu ekki aðild að þeim samningi. Voru stefndu því sýknuð af öllum kröfum stefnanda í málinu.