Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Orðskýring

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júlí 2022

E-2982/2020

Sýn hf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn 365 hf Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur (Gestur Jónsson lögmaður)

Stefnandi hélt því fram að stefndu hefðu gerst brotleg við samkeppnisbann sem þau hefðu undirgengist við sölu til stefnanda á tilteknum eignum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Að mati dómsins braut það ekki gegn banninu að bjóða upp á hlaðvarp á vefsíðu Fréttablaðsins og taldi dómurinn stefndu ekki hafa borið ábyrgð á grundvelli eignarhalds á því að sjónvarpsefni var tengt við vefsíðuna eftir að þau seldu rekstur blaðsins. Þá hefði stefnandi ekki leitt líkum að því að stefndi 365 hf. hefði á grundvelli tiltekinna samningsákvæða um sölu blaðsins gerst brotlegur við samkeppnisákvæði það sem byggt var á í málinu og voru önnur stefndu ekki gerð ábyrg á grundvelli samningsákvæða um sölu blaðsins þar sem þau áttu ekki aðild að þeim samningi. Voru stefndu því sýknuð af öllum kröfum stefnanda í málinu.