Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á tollalögum, nr. 88/2005, og lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum. nr. 27/2009
Seðlabanki Íslands (
Gizur Bergsteinsson hrl)
gegn
X hf, A ehf, Á ehf, B ehf, C hf, D ehf, Ð ehf, E ehf, É ehf, F ehf, G ehf, H ehf, I ehf, Í ehf, J ehf, K ehf, L ehf, M, N, O, Ó, P, Q, R, S og T ehf (
Helgi Jóhannesson hrl)
Í tengslum við rannsókn SÍ á ætluðum brotum X hf. o.fl., gegn lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og reglum settum samkvæmt þeim, var hald lagt á gögn á starfstöðvum tölvufyrirtækisins Ý hf. á grundvelli tveggja dómsúrskurða þess efnis. Í tilefni af áðurgreindri rannsóknaraðgerð kröfðust X hf. o.fl. þess að aðgerðin yrði dæmd ólögmæt og SÍ gert að hætta rannsókn sinni. Hæstiréttur taldi að álitaefni um það hvort sú háttsemi X hf. o.fl., sem til rannsóknar var, væri refsiverð og ólögmæt, gæti ekki sætt úrlausn dómstóla fyrr en tekin hefði verið ákvörðun um að beita X hf. o.fl. stjórnvaldssektum eða höfðað væri á hendur þeim sakamál og vísaði kröfunni frá héraðsdómi. Þá kröfðust X hf. o.fl. þess að áðurgreind haldlagning gagna hjá Ý hf. yrði dæmd ólögmæt og SÍ gert að afhenda öll haldlögð og afrituð gögn og eyða öllum afritum haldlagðra gagna, en að því frágengnu að SÍ yrði gert að skila tilteknum gögnum sem hald var lagt á við húsleitina. Hæstiréttur vísaði frá kröfu X hf. o.fl. er laut að lögmæti og framkvæmd rannsóknaraðgerðarinnar þar sem hún væri afstaðin. Þá hafnaði rétturinn kröfu X hf. o.fl. um að haldi yrði aflétt, einkum með vísan til þess að vegna mikils umfangs hinna haldlögðu gagna yrði að játa SÍ nokkru svigrúmi við rannsókn þeirra, áður en þau yrði afhent X hf. o.fl.
Seðlabanki Íslands (
Gizur Bergsteinsson hrl)
gegn
X hf, A ehf, Á ehf, B ehf, C hf, D ehf, Ð ehf, E ehf, É ehf, F ehf, G ehf, H ehf, I ehf, Í ehf, J ehf, K ehf, L ehf, M, N, O, Ó, P, Q, R, S og T ehf (
Helgi Jóhannesson hrl)
Í tengslum við rannsókn SÍ á ætluðum brotum X hf. o.fl., gegn lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og reglum settum samkvæmt þeim, fór fram húsleit og haldlagning muna hjá X hf. o.fl. á grundvelli tveggja dómsúrskurða þess efnis. Í tilefni af áðurgreindum rannsóknaraðgerðum kröfðust X hf. o.fl. þess að aðgerðirnar yrðu dæmdar ólögmætar og SÍ gert að hætta rannsókn sinni. Hæstiréttur taldi að álitaefni um það hvort sú háttsemi X hf. o.fl., sem til rannsóknar var, væri refsiverð og ólögmæt, gæti ekki sætt úrlausn dómstóla fyrr en tekin hefði verið ákvörðun um að beita X hf. o.fl. stjórnvaldssektum eða höfðað væri á hendur þeim sakamál og vísaði kröfunni frá héraðsdómi. Þá kröfðust X hf. o.fl. þess að húsleit og haldlagning á tveimur starfstöðvum X hf. yrðu dæmdar ólögmætar og SÍ gert að afhenda öll haldlögð og afrituð gögn og eyða öllum afritum haldlagðra gagna, en að því frágengnu að SÍ yrði gert að skila tilteknum gögnum sem hald var lagt á við húsleitina. Hæstiréttur vísaði frá kröfu X hf. o.fl. er laut að lögmæti og framkvæmd rannsóknaraðgerðanna þar sem þær væru afstaðnar. Þá hafnaði rétturinn kröfu X hf. o.fl. um að haldi yrði aflétt, einkum með vísan til þess að vegna mikils umfangs hinna haldlögðu gagna yrði að játa SÍ nokkru svigrúmi við rannsókn þeirra, áður en þau yrði afhent X hf. o.fl.