Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 1. gr. laga nr. 25/1987 — Vaxtalög
Fasteignakaup. Gjalddagi. Afhendingarréttur. Viðtökudráttur. Dráttarvextir. Kröfugerð. Frávísun máls frá héraðsdómi. Af hálfu Ó, Þ og D, seljenda fasteignar, var því haldið fram að kaupandinn, T, hafi átt að afhenda þeim húsbréf við undirritun kaupsamnings í mars 2000. Voru húsbréfin boðin fram í maí s.á. en synjað viðtöku þar til samkomulag náðist milli aðila í desember s.á. Kröfðust seljendur greiðslu þess mismunar sem var á markaðsvirði bréfanna við undirritun kaupsamnings og við afhendingu þeirra, auk dráttarvaxta af mismuninum. Frá því að málið var höfðað og þar til það var munnlega flutt fyrir Hæstarétti hafði grundvöllur og útreikningur dómkröfu þeirra verið á reiki og röksemdir að hluta í ósamræmi við kröfugerð. Voru slíkir annmarkar á málatilbúnaði seljenda að óhjákvæmilegt var að vísa málinu sjálfkrafa frá héraðsdómi.