Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 7. mgr. 8. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna
Sýknað var af kröfu lánþega hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna um ógildingu úrskurðar málskotsnefndar lánasjóðsins, en með úrskurðinum hafði verið staðfest ákvörðun stjórnar lánasjóðsins um að synja beiðni lánþegans um undanþágu frá afborgun námsláns.
Stefnda, sem tók lán hjá stefnanda, Lánasjóði íslenskra námsmanna, 2008 og stefndi, ábyrgðarmaður að láninu, voru dæmd til að greiða stefnanda gjaldfallið námslán óskipt. Kröfu lántakans um lækkun stefnufjárhæðar var hafnað. Því var jafnframt hafnað að Samkomulag um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga tæki til ábyrgðar á lánum stefnanda. Því var einnig hafnað að lög um ábyrgðarmenn tækju til ábyrgðarinnar en þau tóku gildi 7 mánuðum eftir að hún var veitt.