Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 5. gr. a laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Hæstiréttur birt 29. ágúst 2019

33/2019

Kristján Ari Arason (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður)

Aðilar deildu um gildi sjálfskuldarábyrgða sem K hafði undirgengist með áritun á tvö skuldabréf vegna skulda J við L. Hafði bú J verið tekið til gjaldþrotaskipta og K greitt skuldina með fyrirvara um rétt til endurkröfu. Eftir að J lést lýsti K kröfu í dánarbú hans en við meðferð málsins fyrir Landsrétti var upplýst að krafan hefði verið samþykkt á skiptafundi. Þá lá fyrir í málinu að millifærð hefði verið nánar tilgreind fjárhæð á geymslureikning vegna hennar. Talið var að þar sem fyrir lægi að krafa K fengist að fullu greidd af eignum dánarbúsins hefði K ekki lengur lögvarða hagsmuni af því fá dóm um kröfur sínar. Var málinu því vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 14. júní 2019

700/2018

Kristján Ari Arason (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður, Árni Helgason lögmaður, 2. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður)

Aðilar deildu um gildi sjálfskuldarábyrgða sem K undirgekkst með áritun á tvö skuldabréf vegna skulda J við L. Eftir að bú J var tekið til gjaldþrotaskipta hóf L að innheimta kröfuna hjá K sem greiddi hana með fyrirvara um endurkröfu kæmust málskotsnefnd L eða dómstólar að því að krafa L væri óréttmæt. Eftir að J lést lýsti K jafnframt kröfu í dánarbú J og var krafan samþykkt skömmu seinna. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti upplýstist að fyrir lægi að krafa K í dánarbú J fengist að fullu greidd af eignum þess. Niðurstaða Landsréttar var því sú að K hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um kröfur sínar og var málinu því vísað frá Landsrétti.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

372/2017

Jónína Björk Þorvaldsdóttir (Hlynur Jónsson hrl, Áslaug Árnadóttir hrl, 4. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Skuldabréf. Fyrning. Gjafsókn.

L krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður málskotsnefndar L þar sem ákvörðun stjórnar L var felld úr gildi og skuld J vegna námslána samkvæmt tveimur skuldabréfum felld niður. Vanskil urðu á endurgreiðslu J á námsláni frá og með gjalddaga í mars 2009, en J gaf út sérstakt vanskilaskuldabréf í mars 2015. Deildu aðilar einkum um fyrningarfrest skuldarinnar og við hvaða tímamark skyldi miða í því sambandi. Fallist var á með J að bæði skuldabréfin hefðu orðið gjaldkræf tveimur árum eftir ákvörðuð námslok, sem var sama tímamark fyrir bæði skuldabréfin. Á hinn bóginn var fallist á það með L að honum hefði verið rétt að ráðstafa greiðslum J samkvæmt 8. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna fyrst inn á eldra lánið. Það væri meginregla kröfuréttar að þegar kröfuhafi ætti margar kröfur á hendur sama skuldara ætti skuldarinn val um inn á hvaða skuld hann ráðstafaði greiðslu hverju sinni. Léti skuldari engin fyrirmæli fylgja greiðslu sinni bæri að miða við að hann eftirléti kröfuhafa frjálst val um inn á hvaða skuld greiðslunni skyldi ráðstafað. Með því að greiða athugasemdalaust greiðsluseðla sem L sendi hefði J samþykkt í verki fyrirkomulag innheimtunnar. Á meðan J greiddi inn á námslán sitt í samræmi við fyrirmæli 8. gr. laga nr. 21/1992 hefði hvorugt skuldabréfanna verið í vanskilum. Þá var vísað til þess að krafa L væri samkvæmt skuldabréfi sem samkvæmt 1. tölulið 4. gr. laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda fyrndist á 10 árum. Ekki var fallist á með J að rök stæðu til þess að fyrirmæli í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um aðfararheimild yrðu lögð að jöfnu við ákvæði áðurgildandi laga um lögtaksrétt þannig að 4 ára fyrningarfrestur 3. töluliðar 3. gr. laga nr. 14/1905 yrði talinn gilda um kröfuna. Þótti ljóst að kröfur L samkvæmt báðum skuldabréfunum væru ófyrndar. Í því ljósi hefðu ekki verið efni til þess að víkja til hliðar loforði J um greiðslu samkvæmt vanskilaskuldabréfinu á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga svo sem gert hafði verið í úrskurði málskotsnefndar L. Með vísan til alls framangreinds var úrskurður málskotsnefndar L því felldur úr gildi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. maí 2017

E-276/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Jónínu Björk Þorvaldsdóttur (Hlynur Jónsson hrl)
Lykilorð: Ógildingarmál.

Ekki var fallist á að námslánaskuld stefndu væri fallin niður vegna fyrningar. Felldur var úr gildi úrskurður málskotsnefndar Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá 25. janúar 2017 þar sem námslánaskuld stefndu samkvæmt tveimur skuldabréfum var felld niður.