Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 9. gr. laga nr. 21/1990 — Lög um lögheimili
Með ákvörðun 1. ágúst 2018 hafnaði Þjóðskrá Íslands beiðni A um að felld yrði úr gildi lögheimilisskráning A og fjölskyldu hans í tilgreindu erlendu landi frá og með 4. janúar 2017. Var sú ákvörðun staðfest með úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytisins 9. nóvember sama ár. Höfðaði A mál á hendur Í og krafðist ógildingar úrskurðarins. Deildu aðilar um það hvort A hefði uppfyllt skilyrði 1. mgr. 9. gr. þágildandi laga nr. 21/1990 um lögheimili þannig að hann gæti átt lögheimili hér á landi þrátt fyrir búsetu í erlendu landi. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var talið að Þjóðskrá Íslands hefði verið heimilt að krefjast þess að A legði fram staðfestingu frá lækni þess efnis að dvöl hans og fjölskyldunnar í hinu erlenda landi væri þeim nauðsynleg vegna veikinda. Var ekki talið að A hefði sýnt fram á verulega annmarka á ákvörðun Þjóðskrár Íslands eða úrskurði ráðuneytisins. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu Í af kröfum A.