Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986. nr. 20/1994
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar úrskurðarnefndar lögmanna, þar sem stefnandi var látinn sæta áminningu. Var ekki fallist á með stefnanda að nefndinni hefði verið rétt að vísa málinu frá í heild sinni. Þó fallist hafi verið á með stefnanda að rétt hefði verið að veita honum andmælarétt varðandi atriði sem nefndin byggði á og varðaði meðferð málsins fyrir nefndinni, var ekki fallist á með stefnanda að það varðaði ógildindu úrskurðarins. Loks var það mat dómsins að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að nefndin hafi komist að efnislega rangri niðurstöðu.
M fór fram á að kveðinn yrði upp úrskurður um að ekki mætti fara með barnið B úr landi á meðan forsjárdeila hans og móður B yrði leidd til lykta fyrir dómstólum. Talið var að ekki væri unnt að beita heimild barnalaga til að kveða upp slíkan úrskurð, þar sem fullyrðingar M um yfirvofandi brottflutning B úr landi fengju ekki stoð í gögnum málsins.